Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, október 24, 2007

ég ákvað að reyna gagngert að breikka áhugasvið mitt í tónlist og sendi því út beiðni til nokkurra vina að senda mér lista yfir þeirra uppáhaldsplötur. ég er búin að fá fimm lista enn sem komið er og bíð spennt eftir að fá fleiri. ég bað um topp 5 plötur að þeirra mati en fólk má alveg skrifa eins langan lista og það vill og nennir. ef einhver les þetta sem hefur áhuga á að senda mér slíkan lista getur sá hinn sami sent hann á gpóstinn minn.

og þá var það ekki fleira í bili. :-)

fimmtudagur, október 11, 2007

Ooooooooooog þá er hægt að versla diskinn á netinu hérna til hægri. Ég sendi út um allan heim fyrir þá sem vilja diskinn...einungis með landpósti þó. :-) Svo er líka hægt að græja dánlód fyrir þá sem vilja ekki yndislegar myndir af mér og sjálft hulstrið.