ef einhvern langar í jazzdiskinn minn þá fæst hann falur fyrir þúskell. ég er með slatta í kassa með mér. fín tónlist. :-)
laugardagur, september 15, 2007
mánudagur, september 10, 2007
rok.
ég er ennþá í nýrnasteinaveseni. það ætlar að verða eitthvað langdregið að klára þetta mál...búið að taka sinn tíma.
það er komin stúdíópása hjá mér þangað til í byrjun október en þá verður seinni hluti mixins gerður. can't wait!
ég er búin að fá það officially viðurkennt að tónlistin sé "jaðartónlist" sem gleður mig. finnst miklu meira spennandi að vera í alternative tónlist en mainstream poppleðju. újé.
ég er ennþá á íslandi...veit ekki hversu lengi samt. þessi heimsókn er búin að vera mjög furðuleg...meiri en helmingur hefur farið í spítalavesen og að jafna sig í nýrunum. kannski ekki alveg það sem ég planaði. óvell.
sunnudagur, september 02, 2007
ooooooooog guess what!!!
ég fékk nýrnastein! sem situr fastur.
sumir segja að það sé jafnvont eða verra en að eiga barn að upplifa nýrnastein fara niður úr nýra í blöðru...ég verð nú að segja að ég myndi frekar vilja erfiða í tvo daga með svona miklum verkjum og fá barn í lokin en einhvern skitinn nýrnastein.
dagar, nætur, vikur...er ekki tilveran hreint stórkostleg?



