Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, júlí 31, 2007

tha er eg i toronto.
eg sit herna i B studio herberginu sem er litid herbergi med ollu sem tharf fyrir aefingar og paelingar og annad. thad er einhver hljomsveit ad aefa i stora herberginu nuna...eitthvad retro rokkband heyrist mer. fyrr i dag var kantry/folk band ad mixa. ekki alveg my cup of tea en thau virtust mjog spennt med thetta.
eg er buin ad vera ad lagfaera texta og utsetja log med honum maury og eg er otrulega fegin ad madurinn er med svipadan humor og eg og fer ekki i hnut thegar eg geri skrytin hljod og svona hahaha. hann er reyndar algjor snillingur, spilar natturulega a oll hljodfaeri og kunni login utanad eftir fyrstu hlustun svotil.
thad verda alls konar skemmtilegir hlutir i logunum...t.d eg ad labba i mol, banjo, cello og fleira. spenno, spenno, spenno.
svo a morgun hefst gedveikin. maeting klukkan tiu og fjorir tonlistarmenn asamt maury og jeremy sem sja um taeki, tol og leidsogn. eg get ekki neitad thvi ad vera pinustressud...jafnvel bara sma meira en pinu...hehehe. puff.
eg hitti reyndar trommarann adan og hann var svakalega nice.

eg aetla ad taka sma video nuna og myndir. stud, stud, stud.

over&out

sunnudagur, júlí 29, 2007

Nú fer ævintýrið að hefjast. Í fyrramálið sest ég upp í lest sem ber mig alla leið til Toronto. Þar mun ég hitta pródúsentinn fyrir plötuna og vinna með honum í prípródúksjón. Á miðvikudaginn mæta svo hljóðfæraleikarar í stúdíó og þá hefst maraþonupptaka sem stendur yfir í fjóra daga. Þá verða grunnarnir að öllum líkindum tilbúnir og hægt verður að byrja á overdubbi og öðrum skemmtilegheitum...eins og söng!! Svo verður tveggja daga pása 6.-7. ágúst og þá verður Tomminn minn líklega kominn til Toronto og við munum fagna þriggja ára brúðkaupsafmæli saman. Jibbí!
Svo fara dagarnir þar á eftir í upptökur á söng og öðru dúlleríi.

Nú er líka komið á hreint að ég mun mixa og mastera á Íslandi í Gróðurhúsinu sem er svakalega flott stúdíó með góðu fólki. :-)

Þetta er allt alveg hrikalega spennandi en tekur líka á því ég er tiltölulega ein í þessum upptökuprósess og verð að treysta á sjálfa mig, þýðir ekkert að kenna öðrum hljómveitarmeðlimum um neitt því þeir eru ekki til. hehehe.

Ég verð heilar tvær vikur í Toronto og sem betur fer kemur Tommi eitthvað þangað og svo Britta systir. Ég verð sumsé með smá crew með mér þarna undir lokin. Újé. Þeir sem eiga leið um Toronto næstu tvær vikurnar er velkomið að kíkja á mig...

Óskar bróðir hans Tomma og Sólveig kærasta hans eru í heimsókn hjá okkur núna og verða hér fram á fimmtudag. Ég er nú hálfslappur gestjafi að yfirgefa pleisið bara...oh, well...það er ekki á hverjum degi sem maður hefur tækifæri til að taka upp breiðskífu!!!

Aight. Segjum þetta gott. Ég ætla að reyna að dokúmenta prósessinn með myndavélum og vídeói og aldrei að vita nema ég bloggi líka til að láta vita hvernig gengur.

Peace.

fimmtudagur, júlí 19, 2007

ég er dökkhærð.

ég er á fullu að vinna í plötunni.

ég fer í stúdíó 1-12. ágúst.

ég er komin með svokallaðan pródúsent. maury lafoy.
hann spilaði á bassa inn á síðustu plötur með k-os. einhverjir kannast kannski við lagið hans "sunday morning"...kannski var það bara vinsælt hér á síðasta ári. æ dónt nó. check it!

ææææææææææææææææt?

funky folkjazzpopelectronica. er það ekki málið?

fimmtudagur, júlí 12, 2007

júlí? what?
júlía átti afmæli í gær. til hamingju til hennar. :-)

ég er að undirbúa upptökur sem fara fram í ágúst...meiriháttar vinna framundan. jæks!
fullt af lögum. fullt af hljóðfærum. fullt af hljóðum. vonandi að stöffið komi til með að hljóma vel.

það er búið að vera heitt, heitt og rakt, rakt. gott að vera með loftkælingu. annars væri ég löngubráðnuð.

jazzdiskurinn minn verður tilbúinn eftir tvær vikur að öllum líkindum og þá meina ég TILBÚINN. prentun, pressun, alles. þeir sem vilja fá eintak geta sent mér póst. :-)
hinn diskurinn verður tilbúinn með haustinu og verður umfangsmeiri og allt öðruvísi. meiri tilraunastarfsemi þar á ferð og annars konar tónlist líka. lög sem fólk þekkir og þekkir ekki...en í algjörlega nýjum útgáfum. endurskoðuð frá grunni í annarri heimsálfu. það hlýtur bara að vera spennandi. er það ekki?