Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júní 30, 2007

ein sit ég og sauma...og þó ekki.

í gær hringdi ég í fyrsta skipti í 911. ég kom ásamt öðrum að eldri manni á lestarstöðinni sem hafði dottið á höfuðið og meitt sig...ég var fyrst til að hringja og það var ágæt reynsla útaf fyrir sig. núna kann maður prósessinn allavega. maðurinn var alveg í lagi held ég, hann lyktaði af áfengi líka og valtur fyrir. hann sagði að ég væri "woman of god". vona að það sé rétt hjá honum.

tommi og krakkarnir eru farin til íslands og ég er að rembast við að vinna í plötunni. á morgun kemur trommarinn að hjálpa mér aftur og það verður vonandi góð sessjón. hann er svo ótrúlega góður trommari og hugmyndaríkur. :-)

núna er jazzhátíðin byrjuð og fullt prógram framundan af tónleikum...sem ég ætla á. ég spila bara tvisvar og ekki á neinum sérstökum hátíðarstöðum...næsta ár, næsta ár...

þriðjudagur, júní 19, 2007

ójá. britta átti afmæli í gær. til hamingju til hennar.

í dag eru allir í la ronde að tékka á rússíbönum og öðru slíku. ég er bara heima að vinna í plötunni. á morgun kemur svo trommari að hjálpa mér með beatz. ojé. það verður bylting. hann mun líklega koma oftar, enda slatti af lögum sem vantar takt. fínt að eiga góða vini sem vilja hjálpa manni. :-)

það er þrumuveður og sól úti! furðulegt.

miðvikudagur, júní 13, 2007


Minn ástkæri eiginmaður á afmæli í dag. Ég óska honum innilega til hamingju með það og vona að dagurinn verði góður hjá okkur í 26°C og sól. :)

sunnudagur, júní 10, 2007

ooooooooooog hvað?
við tommi skruppum í skyndiferð til íslands í viku og fengum íslenska veðráttu beint í æð. rok og rigning, rigning og rok. it never ends! við létum enga vita af komu okkar enda vorum við mest megnis bara að dútla með krakkana og eitthvað svoleiðis, þau ennþá í skólanum og svona.
ég komst að því að heilmargir tóku eftir greininni í mogganum og líkaði bara vel. :-) sjúkket, ég hélt að ég væri ein í heiminum í örskamma stund. hehehe...eða bara sjálfumglöð og vanþakklát. eða eitthvað. eru það ekki allir annars?
nú er það bara back to business. work. work. work.

við tommi spiluðum í gala dinner hjá flugmálastjórnarhöfuðstöðvardóti í gærkvöldi. ég gerði mig næstum því að fífli með því að reyna að spila á greiðu í sparifötum fyrir virðulegt fólk frá öllum heiminum. ég fann ekki kazooið mitt og ákvað því að reyna við greiðuna með misjöfnum árangri. hehhh. ekki reyna að spila á greiðu með gloss á vörunum, það klessist allt!

það er sól og blíða úti...fullkomið veður til sólbaðs. kannski ég stelist út í klukkutíma eða svo til að fá smá d vítamín. hmmm.