Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, maí 24, 2007

hvaða kona er þetta framaná morgunblaðinu í dag? með hárkollur að gretta sig...

fimmtudagur, maí 17, 2007

ég fylgdist spennt með kosningaúrslitum á íslandi á laugardagskvöldið. tommi kom frá kaliforníu sama kvöld, mamma var á íslandi, pabbi í suður-afríku, britta í róm, tommi á grikklandi, maggi og maja á írlandi og tengdó á spáni. talk about international! svakalega var þetta spennó annars. og þetta er ennþá spennó. mér fannst samt athyglivert að sjá svona skýr skilaboð frá kjósendum. það sem mér fannst koma útúr þessu sem áhorfandi langt í burtu var eftirfarandi:
fólk vill ekki hafa framsókn í stjórn
fólk vill hafa sjálfstæðisflokkinn í stjórn
fólki er mjög annt um náttúruna
fólkið skammaði björn bjarnason og árna johnssen
og ábyggilega margt meira...

ég held ég hafi ekki minnst á það áður hér að ég er að vinna í nýrri plötu og í samstarfi við góðkunnan tónlistarmann á íslandi, nefnilega Jóhann G. Jóhannsson. þetta er allt á frumstigi ennþá en er í senn spennandi og "challenging" fyrir mig. nú er stefnunni aðeins breytt og stefnt á meiri tilraunir í músíkinni. tilraunir á endurgerð laga og í sumum tilfellum textum líka. það hefur alltaf búið í mér lítið ljóðskáld og nú fær það að gægjast út í dagsljósið. á ensku!
ljóð og söngtextar hafa alltaf átt betur við mig en annars konar textagerð. hugsanaflæðið er of sundurslitið í hausnum á mér til að ég geti skrifað heila sögu...hehe.
svo er ég sjálf að brjótast út í sköpun...held ég sé að komast á það stig að geta samið tónlist sjálf. ég bjó til nýja myspace síðu fyrir þesskonar dótarí. það er ekkert komið inn þar ennþá en það stefnir allt í það. á þeirri síðu heiti ég Nista sem er bara Stina....en rugluð. :)

ég get annars með sanni sagt að það að vera listamaður hefur sína kosti og galla. ég er reyndar ekki alveg orðin vön því að kalla mig listamann því mér finnst ég ekki hafa unnið almennilega fyrir því ennþá. það er til að mynda ógurlega gaman að koma fram og fá að upplifa lifandi tónlist og taka þátt í henni. það liggur við á stundum að maður komist í eitthvað yfirnáttúrulegt ástand þegar samvinnan gengur hvað best og tónlistarmennirnir vel samstilltir. einstaka sinnum kemur það fyrir að ég man varla eftir því að hafa sungið lag...en stend eftir með gæsahúð!
svo kemur að því að undirbúa þetta allt saman...vinnan sem fer í það að undirbúa sig fyrir tónleika, upptökur og annað fer kannski framhjá einhverjum sem hafa ekki velt því fyrir sér. hún felst í því að sitja yfir lögum, nótum og upptökum, fara á æfingar sem oft geta verið strembnar og undirbúa sig sálarlega til að standa í þessu öllu saman. akkúrat núna er ég að vinna í því að læra lög og búa til útsetningar fyrir þau. þegar maður er einn og ekki hluti af hljómsveit per se þá getur það verið ofsalega krefjandi starf. stundum finnst mér ég vera snillingur en stundum finnst mér ég vera ferlegur amatör sem ætti bara að fara að gera eitthvað annað. það upplifa þetta líklega flestir á einn hátt eða annan og í rauninni er bara gaman og gott að upplifa þetta ferli. ég held að öðruvísi vaxi maður ekki.
hallelúja!

sunnudagur, maí 13, 2007


gleðilegan mæðradag elsku mamma mín. :-)

laugardagur, maí 12, 2007

miðvikudagur, maí 09, 2007

ég er eiginlega hætt að nenna að blogga. mig grunar líka að það lesi þetta enginn og ef einhver les þetta þá nennir sá hinn sami aldrei að kommenta og það verður til þess að ég nenni enn síður að blogga. vicious cycle.

tommi fór til kaliforníu í gær og ég sakna hans bara strax.

það er annars bara komið sumar hérna hjá mér. í gær fór hæst upp í 26° C!! og í dag verður það svipað víst. kannski ég skelli mér bara í sólbað...hmmm...

nú fer að styttast í heimsóknir. mamma kemur fyrst. jibbííííííí.

jazzgeisladiskurinn minn verður tilbúinn von bráðar býst ég við og svo er ég að vinna í öðrum og annars konar diski. hann kemur líklega út á haustmánuðum. stay tuned...