loooooooooooooxins virkar síðan mín. :-)
tommi gunn bjargaði henni. húrra fyrir honum!
í gærkvöldi fórum við í skeitarapartý hjá vini okkar. heima hjá honum er svona hjólabretta"ramp" og í partýinu mættu sumir með hjólabretti og svo var dj og alles. mjög skemmtilegt.
ein mynd úr partýinu...þarna er jeff úr hljómsveitinni hans tomma að hoppa

þetta er sumsé heima hjá gæjanum og þessir sem eru að skeita eru í "crew"-i sem var að gefa út bók um stað sem þeir eru að hjólabrettast á og er staðsettur hjá ólympíuhöllinni hérna. við keyptum eintak af bókinni og fengum aðalgæjana til að skrifa í hana. í bókinni eru myndir af alls konar hljólabrettabrellum og þar á meðal jeff í einhverjum hundakúnstum.
þegar leið á kvöldið var svo tekinn fram hljóðnemi og einhverjir dúdar byrjuðu að rappa. mjög skeitaralegt allt saman. hehehe.




