Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

klukkan er fimm í níu að morgni fimmtudags. ég er vöknuð og búin að fá mér complimentary breakfast ásamt alls kyns túristum og leiðinlegum mömmum. ég segi leiðinlegum því áðan þegar ég var á leiðina í lyftuna var fjölskylda með tvö börn, strák kannski fimm ára og litla stelpu í vagni. þar sem ég stend þarna við hliðina á þeim byrjar mamman að hrista strákinn og öskra á hann "hættu að endurtaka allt sem við pabbi þinn segjum!". úff, ég fékk nú bara sting í hjartað við að horfa á þetta, hún var svo vond í tóninum og aumingja barnið þagði bara í skelfingu og pabbinn horfði vandræðalega á mig. svo kom lyftan og strákurinn var ekki nógu og fljótur að fara inn svo lyftan fór og þá voru foreldrarnir svakalega óánægðir með hann og hristu hausinn og fussuðu og sveiuðu yfir barninu sínu. kræst!

en að öðrum og muuuuuuuun skemmtilegri málum.
í gær var langur og strangur dagur sem byrjaði á því að aðaltölva stúdíósins bræddi úr sér. það gaf okkur tækifæri á því að æfa nokkur lögin fyrir upptökur sem var bara fínt og spilaði bandið aðeins saman. hljóðmaðurinn var ekki lengi að redda nýrri tölvu og setja allt upp á nýtt svo við byrjuðum að taka upp eftir hádegismat.
tónlistarmennirnir og pródúsentinn sem ég hef fengið með mér í lið í þetta verkefni eru bara frábærir! þetta var ótrúlega gaman og ég var ekki nærri því eins stressuð og ég bjóst við að vera. þeim fannst þetta líka skemmtilegt og áhugavert verkefni og fíluðu sig bara alveg ferlega vel að vera að spila íslenska slagara í nýjum útgáfum. hahaha.
eitt lagið okkar tók óvænta stefnu í fyrradag þegar við ákváðum að hafa rokk í endann á því...hljómar svipað og nine inch nails eiginlega...og orðin eru tekin úr biblíunni!!! getur ekki orðið fríkaðra en það. :-) ég réð ekki við mig í upptökuklefanum mínum á meðan á upptökum stóð að byrja bara að slamma og hoppa...þá hljótum við að vera að gera eitthvað rétt, er það ekki?

1 Comments:

At 12:47 AM, Blogger Tommi said...

hehe, ég væri alveg til í að sjá vídeó af því þegar þú ert að "slamma" :)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home