Nú fer ævintýrið að hefjast. Í fyrramálið sest ég upp í lest sem ber mig alla leið til Toronto. Þar mun ég hitta pródúsentinn fyrir plötuna og vinna með honum í prípródúksjón. Á miðvikudaginn mæta svo hljóðfæraleikarar í stúdíó og þá hefst maraþonupptaka sem stendur yfir í fjóra daga. Þá verða grunnarnir að öllum líkindum tilbúnir og hægt verður að byrja á overdubbi og öðrum skemmtilegheitum...eins og söng!! Svo verður tveggja daga pása 6.-7. ágúst og þá verður Tomminn minn líklega kominn til Toronto og við munum fagna þriggja ára brúðkaupsafmæli saman. Jibbí!
Svo fara dagarnir þar á eftir í upptökur á söng og öðru dúlleríi.
Nú er líka komið á hreint að ég mun mixa og mastera á Íslandi í Gróðurhúsinu sem er svakalega flott stúdíó með góðu fólki. :-)
Þetta er allt alveg hrikalega spennandi en tekur líka á því ég er tiltölulega ein í þessum upptökuprósess og verð að treysta á sjálfa mig, þýðir ekkert að kenna öðrum hljómveitarmeðlimum um neitt því þeir eru ekki til. hehehe.
Ég verð heilar tvær vikur í Toronto og sem betur fer kemur Tommi eitthvað þangað og svo Britta systir. Ég verð sumsé með smá crew með mér þarna undir lokin. Újé. Þeir sem eiga leið um Toronto næstu tvær vikurnar er velkomið að kíkja á mig...
Óskar bróðir hans Tomma og Sólveig kærasta hans eru í heimsókn hjá okkur núna og verða hér fram á fimmtudag. Ég er nú hálfslappur gestjafi að yfirgefa pleisið bara...oh, well...það er ekki á hverjum degi sem maður hefur tækifæri til að taka upp breiðskífu!!!
Aight. Segjum þetta gott. Ég ætla að reyna að dokúmenta prósessinn með myndavélum og vídeói og aldrei að vita nema ég bloggi líka til að láta vita hvernig gengur.
Peace.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home