júlí? what?
júlía átti afmæli í gær. til hamingju til hennar. :-)
ég er að undirbúa upptökur sem fara fram í ágúst...meiriháttar vinna framundan. jæks!
fullt af lögum. fullt af hljóðfærum. fullt af hljóðum. vonandi að stöffið komi til með að hljóma vel.
það er búið að vera heitt, heitt og rakt, rakt. gott að vera með loftkælingu. annars væri ég löngubráðnuð.
jazzdiskurinn minn verður tilbúinn eftir tvær vikur að öllum líkindum og þá meina ég TILBÚINN. prentun, pressun, alles. þeir sem vilja fá eintak geta sent mér póst. :-)
hinn diskurinn verður tilbúinn með haustinu og verður umfangsmeiri og allt öðruvísi. meiri tilraunastarfsemi þar á ferð og annars konar tónlist líka. lög sem fólk þekkir og þekkir ekki...en í algjörlega nýjum útgáfum. endurskoðuð frá grunni í annarri heimsálfu. það hlýtur bara að vera spennandi. er það ekki?

1 Comments:
Hvað þarf maður eiginlega að gera til að fá svona disk?!!
Sendu inn athugasemd
<< Home