Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 10, 2007

ooooooooooog hvað?
við tommi skruppum í skyndiferð til íslands í viku og fengum íslenska veðráttu beint í æð. rok og rigning, rigning og rok. it never ends! við létum enga vita af komu okkar enda vorum við mest megnis bara að dútla með krakkana og eitthvað svoleiðis, þau ennþá í skólanum og svona.
ég komst að því að heilmargir tóku eftir greininni í mogganum og líkaði bara vel. :-) sjúkket, ég hélt að ég væri ein í heiminum í örskamma stund. hehehe...eða bara sjálfumglöð og vanþakklát. eða eitthvað. eru það ekki allir annars?
nú er það bara back to business. work. work. work.

við tommi spiluðum í gala dinner hjá flugmálastjórnarhöfuðstöðvardóti í gærkvöldi. ég gerði mig næstum því að fífli með því að reyna að spila á greiðu í sparifötum fyrir virðulegt fólk frá öllum heiminum. ég fann ekki kazooið mitt og ákvað því að reyna við greiðuna með misjöfnum árangri. hehhh. ekki reyna að spila á greiðu með gloss á vörunum, það klessist allt!

það er sól og blíða úti...fullkomið veður til sólbaðs. kannski ég stelist út í klukkutíma eða svo til að fá smá d vítamín. hmmm.

1 Comments:

At 7:23 PM, Anonymous Nafnlaus said...

...hm það var nú gott veður síðasta daginn .....

knús - morsan

 

Sendu inn athugasemd

<< Home