ein sit ég og sauma...og þó ekki.
í gær hringdi ég í fyrsta skipti í 911. ég kom ásamt öðrum að eldri manni á lestarstöðinni sem hafði dottið á höfuðið og meitt sig...ég var fyrst til að hringja og það var ágæt reynsla útaf fyrir sig. núna kann maður prósessinn allavega. maðurinn var alveg í lagi held ég, hann lyktaði af áfengi líka og valtur fyrir. hann sagði að ég væri "woman of god". vona að það sé rétt hjá honum.
tommi og krakkarnir eru farin til íslands og ég er að rembast við að vinna í plötunni. á morgun kemur trommarinn að hjálpa mér aftur og það verður vonandi góð sessjón. hann er svo ótrúlega góður trommari og hugmyndaríkur. :-)
núna er jazzhátíðin byrjuð og fullt prógram framundan af tónleikum...sem ég ætla á. ég spila bara tvisvar og ekki á neinum sérstökum hátíðarstöðum...næsta ár, næsta ár...

1 Comments:
Eina skiptid sem eg hef hringt i 911 var thegar pit bull hundur gekk laus i hverfinu okkar i Concord. Vorkenni folki sem lendir i lifshaettu og tharf ad hringja i 911 thar a bae. Ekki sma mikill prosess bara ad fa ad tala vid einhvern :(
Sonja
Sendu inn athugasemd
<< Home