ég er eiginlega hætt að nenna að blogga. mig grunar líka að það lesi þetta enginn og ef einhver les þetta þá nennir sá hinn sami aldrei að kommenta og það verður til þess að ég nenni enn síður að blogga. vicious cycle.
tommi fór til kaliforníu í gær og ég sakna hans bara strax.
það er annars bara komið sumar hérna hjá mér. í gær fór hæst upp í 26° C!! og í dag verður það svipað víst. kannski ég skelli mér bara í sólbað...hmmm...
nú fer að styttast í heimsóknir. mamma kemur fyrst. jibbííííííí.
jazzgeisladiskurinn minn verður tilbúinn von bráðar býst ég við og svo er ég að vinna í öðrum og annars konar diski. hann kemur líklega út á haustmánuðum. stay tuned...

6 Comments:
Ég les bloggið þitt :)
BH
ég líka, alltaf
og hér með verð duglegri að kommenta ;)
xxx
BÓ
Ég er líka dyggur lesandi! :D
xxx,
JJ
nohh...það er bara svona. aaaaallllt að verða brjálað. hehehe
Ég kíki líka reglulega við ... veit samt upp á mig skömmina að hafa ekki verið nógu dugleg við að kommenta undanfarið, það á samt við um allar síður sem ég les, ekki bara þína! Lofa bót og betrun á öllum sviðum!
(P.s. En ótrúlega gaman að fá mömmu í heimsókn, það verður bókað jätte trevligt, mysigt og skönt hjá ykkur mæðgunum í Montréal!)
Hey ég les líka....
Sendu inn athugasemd
<< Home