Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, apríl 18, 2007

síðan mín var niðri í gær og fyrradag af því að það þurfti að endurnýja lénið og eitthvað vesen. tommi hjálpaði mér að koma þessu í gang aftur en tölvupóstþjónninn er ennþá niðri þ.a stinastud pósturinn minn virkar ekki akkúrat núna.

í kvöld syng ég á taza flores, annað kvöld verða improv 2 tónleikar og á föstudagskvöldið verða big band tónleikar. svakamikið í gangi og ég að fá kvef og allt. fjúff.

mikið svakalega verður maður sorgmæddur við að heyra fréttir af svona skotárásum og mannvonsku eins og gerðist þarna í virginia. maður furðar sig líka á því hvernig löggjöfin varðandi byssueign geti verið svona frjáls í sumum ríkjum í usa. ferleg vitleysa. svo talar forsetinn ekki um annað en þessa hryðjuverkamenn í fjarskanistan og gleymir eigin vandamálum...katrina, mengun...anyone?