Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, apríl 12, 2007


nú er reykingabann á veitingastöðum, börum og öðrum samkomuhúsum búið að vera gildandi í næstum því ár. þvílík bylting! ég hélt einhvern veginn að reykingafólk myndi kvarta meira undan banninu og að þetta ætti eftir að ganga erfiðar fyrir sig en mér til mikillar ánægju hefur fólk bara almennt verið jákvætt yfir þessu. það kom mér reyndar ansi mikið á óvart að það skyldi farið út í þetta hér af því að það er svo svakalega mikið af reykingafólki hérna. voðalega franskt eitthvað.
núna getur maður farið út að borða, á skemmtistaði og ég tala nú ekki um að syngja á börum án þess að anga af sígarettulykt. munurinn er ótrúlegur. ég efast líka um að bareigendur séu voðalega ósáttir við þetta af því að þeir halda heilsunni og þeir sem ég hef rætt við hafa ekki talað um mun á viðskiptum. það er auðvitað dáldið vafasamt að vera að banna hitt og þetta í nútímaþjóðfélagi en ég held að þetta bann sé bara af hinu góða. ég vona að íslendingar taki þetta upp líka...þá gæti maður loksins farið út að skemmta sér! eða þannig...hehehe.