Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, apríl 08, 2007

Göleeeeðilega páska!
Nú skal étið súkkulaði og glápt á sjónvarp og hangið í tölvunni. Ójá.

Vorið fór aftur. Ég veit ekki hver pantaði þetta veður hérna en það er búið að rigna og snjóa í viku eða eitthvað. Ferlega svekkjandi.

Ég var búin að panta páskaegg frá Íslandi fyrir löngu síðan og þau komu líka fyrir löngu síðan. Ég er búin að vera að halda því leyndu fyrir Tomma allan tímann og það hefur tekið ferlega á. Svo í gærkvöldi gat ég ekki haldið í mér lengur og tók fram kassann með herlegheitunum. Tommi varð nú ekkert voðalega hissa, hálfpartinn vissi þetta allan tímann. Ó vell. Ég varð ábyggilega meira hissa en hann...hehehe.