Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, apríl 03, 2007

er ég löt? neiiiiii...

vorið er komið og grundirnar gróa. vorlaukarnir spýtast upp úr jörðinni hver af öðrum og bráðnaður hundaskítur lyktar illa í blómabeðum og á grasflötum. það er tæp vika í páskana og guði sé lof fyrir það.

ég er alltaf að vinna í disknum mínum á fullu og undirbúa það allt saman. svo er planið að halda tónleika á íslandi við næsta tækifæri...jafnvel bjóða tónlistarmönnum héðan með mér. væri það ekki alveg tilvalið? hver vill borga...?

það voru kosningar hérna um daginn. ég veit ekkert hver vann eða hver var í framboði en fólkið í skólanum hjá mér hélt með græna framboðinu. go figure. graselskandi tónlistarmenn. hehehe.