Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, mars 14, 2007

smá öppdeit. kommentakerfið gamla er beeeeeeeelað. það er víst búið að skipta um eigendur á blogextra og síðan þá hefur kerfið þeirra verið úti. þeir segja að það eigi að lagast von bráðar...ég veit að lesendur síðunnar hafa verið ofboðslega sárir og reiðir yfir því að fá ekki að kommenta hérna á síðunni. þið getið tekið gleði ykkar á ný því ég er einmitt með varakommentakerfi frá blogger sjálfum til að fyrirbyggja svona aðstæður. eeeeeeeeeeeeeeeeeeníveis.

í kvöld spila ég með bandinu mínu á stað sem heitir taza flores. þetta er tapas bar og það verður selt inn. ég veit ekki hvort það á einhver eftir að koma fyrst það er hægt að sjá okkur frítt alla fimmtudaga. vonum bara að einhver mæti.

nú er komið ansi gott gestaprógram fyrir sumarið! sweet.
fyrst kemur mamma, svo tengdó, svo krakkarnir, brynjar og kristrún og svo óskar og sólveig. held bara að þetta verði gestasumarið mikla 2007. :-)
ef einhverjir aðrir vilja koma er þeim velkomið að senda mér fyrirspurn um laus herbergi. hehehe.

gestirnir fá að njóta þess að sitja úti á svölum og drekka kalda drykki sem ég mun góðfúslega sjá um að blanda.