Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, mars 05, 2007

fyrst af öllu...ég er búin að fá nóg af snjó. hér eru fjöll ofaná fjöll af snjó um allt og enn snjóar!

ég og tommi fórum út á laugardagskvöldið. við ákváðum að snæða kvöldverð á house of jazz þar sem kennarinn minn hann charles ellison spilar um helgar. við fengum borð nálægt sviðinu en þess ber að geta að þetta er einn af helstu jazzstöðum í montreal og líklega sá elsti sem hefur lifað af. þarna spila engir meðaljónar (bara að gera smá meira úr þessu hehehe). þegar við komum að borðinu okkar gekk bandið á svið skömmu seinna og auðvitað heilsaði ég charles og hann dró johnny scott með sér sem er frontmaðurinn í hljómsveitinni og spilar á saxofón og syngur. þeir spurðu mig hvort ég ætlaði ekki að taka lagið með þeim og ég sagðist bara ætla að athuga málið...hehh...varð dáldið stressuð og átti erfitt með að koma niður djúsí steikinni sem við pöntuðum okkur! svo kom að því og ég bara taldi í mig kjarkinn með hjálp tomma og skoppaði upp á svið og tók "softly, as in a morning sunrise" með þeim. jess! algjör snilld. fraser holland heitir bassaleikarinn og er ansi vinsæll í montreal og víðar og hinir spilararnir voru líka asskoti góðir. lagið gekk bara vonum framar og ég tók sóló og alles. :-)