
þarna erum við sæt og fersk í mohave eyðimörkinni.
það eru ennþá fjöll af snjó hérna en þau bráðna í dag...múhahahaha...það er sko komið upp yfir frostmark og á að vera næstu daga. síðan frystir örugglega aftur, svekk. ég er orðin ansi þreytt á vetrinum hérna. það er einfaldlega bara of kalt. hvar eru gróðurhúsaáhrifin þegar maður þarf á þeim að halda? nei, þetta var nú ljótt grín. al gore væri sko ekki ánægður...
mig dreymdi alveg furðulega í nótt. ég fékk einhverja súperheyrn og heyrði bara allt í heiminum...en í raunveruleikanum held ég að mér hafi verið eitthvað illt í eyrunum í nótt og ég hafi jafnvel fengið eitthvað suð í eyrun. ég sumsé heyrði bara allt saman og það rann út í eins konar suð með röddum hér og þar og ég gat alveg greint orð inn á milli. mjög furðulegt. svo reyndi ég að vakna en gat það ekki og var svona mitt á milli og alveg lömuð í líkamanum...reyndi að öskra en það komu bara einhverjar aumingjalegar stunur útúr mér og sem betur fer vaknaði tommi við þær og vakti mig (ég hef sagt honum að ég lendi stundum í því að geta ekki alveg vaknað og svona stunur bendi til þess að ég sé að reyna það...og hvort hann vildi ekki vinsamlegast vekja mig). sjúkket. það er svakalega óþægilegt að vera að reyna að vakna en geta það ekki.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home