við tommi ákváðum í gær að stinga af í fjóra daga...til VEGAS! ó mæ. viva las vegas!!
hver sá sem sagði að það væri boring að vera giftur hefur bara ekki kynnst tomma gunn greinilega. :-)
annars er bara allt á fullu eins og vanalega. syng með big bandinu í kvöld og fer á fund með eiganda tapas bars sem vill hafa jazzkvöld (eftir að hann hlustaði á demóið mitt...hehehe). svo eru alltaf gigg á fimmtudagskvöldum og þau eru vanalega mjög fjörug og afslöppuð.
ég er að bíða eftir mixi númer tvö frá honum jeremy sem tók upp með mér í toronto. þegar ég er orðin ánægð með útkomuna tekur næsta skref við. það verður að vinna press kit með umslagi, geisladisk og svoleiðis. ég er búin að finna afrískan könnuð (grafískan hönnuð) til að vinna með mér svo þetta er komið í einhvern farveg. best að drífa þetta af svo ég hafi tíma til að sækja um jazzhátíðir og svona. :-)
svo eru nokkrir búnir að melda sig í heimsókn í sumar. tengdó mæta í lok maí, krakkarnir koma náttúrulega...ekki búin að bóka það en göngum frá því sem fyrst, óskar mætir svo með sína skvísu í lok júlí. algjör bylting að hafa beint flug, i like it!
peace&love

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home