ég fór í leiklistartíma í dag. ákvað að taka einn svona fríkó kúrs eftir áramót til að fá eitthvað annað en tónlist. í dag fengum við heimaverkefni. einhvern tímann í vikunni eigum við að finna 24 klukkustunda tímabil þar sem við megum ekki gefa frá okkur neitt hljóð...ekkert tal, enginn söngur...ekki neitt. ég hélt nú að þetta gengi bara ekki upp hjá mér, verandi söngkona og með tvö gigg í vikunni og meðfylgjandi æfingar og hvaðeina. ég ákvað samt að prófa og byrjaði bara um leið og tíminn var búinn. nú eru liðnir tveir tímar síðan og ég hef ekki gefið frá mér neitt hljóð. þetta hefur ekki verið neitt erfitt hingað til enda er ég búin að vera mest megnis ein síðan. það verður erfiðara þegar tommi kemur heim og byrjarð að spyrja mig hvar sinnepið sé og svona. hehehe. sjáum til.

2 Comments:
Hi. Use these helpful links BD search & movie pages and try to find all you need in your area!
for fun
Hello. Use these helpful search engines TFO search & livechat and try to find all you need in your area!
for fun
Sendu inn athugasemd
<< Home