Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, janúar 16, 2007

OooooooooooooooooooooooooooooooJeeeeeeeeeee...

allt komið á fullt í skólanum aftur og rosamikið að gera í kvintettinum mínum. við spiluðum síðasta fimmtudag og aftur núna á fimmtudaginn og svo eins marga fimmtudaga og við getum held ég bara. :-)

ég veit ekki hvort ég minntist á það fyrr en ég er á leiðinni til toronto að taka upp nokkur lög með brjáááááááááálaðislega góðum spilurum og pródúser í næstu viku. ég legg af stað 25. og upptökur fara fram dagana tvo þar á eftir og svo verður mixað og grúskað eitthvað í þessu. tommi gunn ætlar að koma og vera með mér hluta af ferðinni og ég er ferlega feginn að hann getur það, var orðin dáldið stressuð að fara þangað ein..hehe.
ég segi betur frá þessu þegar nær dregur en þetta er verulega spennandi verkefni og voooonandi kemur eitthvað ennþá meira spennandi útúr því.

við erum að horfa á fyrsta þáttinn af american idol og þetta er bara hörmung! fólk er alveg ótrúlegt!! mér finnst alltaf jafnskrýtið að hlusta á hversu öruggir sumir halda að þeir séu og svo kemur bara eitthvað bull útúr þeim sem hljómar alls ekki eins og tónlist. ædóntgettitt.

eníveis. allt í góðu hérna megin. písát.