Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, janúar 06, 2007

jólin komin og farin. nýtt ár. annað land og minningarnar verða bara fleiri og fleiri.

ferðin heim var löng og ég orðin lasin í þokkabót. ég hef ekki gert mikið síðan ég kom heim. aðallega verið að reyna að ná pestinni úr mér bara og komast í skólagírinn. fór aðeins út í dag reyndar og skoðaði mannlífið í bænum. mér er farið að finnast afskaplega huggulegt að komast aftur til montreal. einhvern veginn afslöppuð tilfinning. :-)

tommi er að skrúfa. hann er alltaf að skrúfa eitthvað sundur og saman og yfirleitt tengist það gíturum á einn eða annan hátt. nú er hann farinn að bora. það er aldeilis.

mér fannst við hæfi að skella inn mynd sem kom á forsíðu lögbergs heimskringlu (blað fyrir íslendinga í ameríku)...ekki amalegt.



annars vildi ég bara þakka fyrir okkur...jólin voru afskaplega góð og kósý og við höfðum það sérlega gott í faðmi fjölskyldu og vina. :-)