Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, desember 22, 2006

LOOOOOOOKSINS!!! Jólalagið er tilbúið og meira til...núna er vídeó með og það má skoða hér að neðan. Ef fólk nennir ekki að horfa á okkur þá má nálgast bara lagið hér.



Gleðileg jól allir saman! Ég bara meikaði ekki að gera jóladagatal í ár...var svo feeeelllega löt. :-)

mánudagur, desember 18, 2006

já fjandakornið nú er ég orðin ansi pirruð á flugleiðum!
við sitjum hérna á logan flugvelli í boston og bíðum og bíðum og bíðum eftir að komast í flugvélina sem bilaði í gær. við áttum sumsé að fljúga í gærkvöldi en eftir að hafa setið inni í flugvélinni í þrjá tíma var okkur sagt að einhver varahlutur sem vantaði fyndist hvergi í boston og við yrðum bara að gjöra svo vel að fara út og gista á hóteli yfir nótt og mæta svo sólahring seinna á flugvöllinn aftur. töskurnar urðu eftir í flugvélinni svo við erum búin að vera ansi lengi í sömu fötunum og orðin ansi þreytt á þessu veseni! nú erum við búin að missa heilan dag úr fríinu okkar í eitthvað vesen...ég lýsi frati á flugleiðir. svekk.

vonandi fáum við að fara af stað bráðum...annars verð ég verulega fúl og heimta skaðabætur. grrrrr...

pirringskveðjur frá boston.

já og jólalagið okkar er aaaaaaaaaaaalveg að verða tilbúið...hefði verið tilbúið ef við hefðum ekki lent í þessu rugli hérna.

laugardagur, desember 16, 2006

sjæse hvað er langt síðan ég skrifað hérna síðast. vonandi les þetta einhver!
ég hef bara haft lítinn tíma í annað en æfingar og þreytu..hehe...og upptökur á jólalagi!!! við erum ennþá að vinna í laginu þannig að það kemur ekki aaaaalveg strax. svo förum við til íslands á morgun og lendum á mánudagsmorgun. við verðum til að byrja með búsett á grjótagötu og fólk er velkomið í heimsókn þangað. :-)
já svo smá shout out til jóhanns sem varð tuttugu plús tíu í gær og líka til múttu og pápa sem eiga brúðkaupsafmæli í dag.
á eftir er ég að fara að syngja í einhverju stóru jólapartýi hjá einhverju flugfélagi...smá stress af því að þetta er eitthvað svo formlegt og svo mikið af fólki. vona að enginn verði fúll yfir skemmtiatriðum!

laugardagur, desember 09, 2006

ókei. komin í "jólafrí", allavega frí í skólanum. síðasta vika var út í hött! á mánudaginn voru tvær æfingar, þriðjudaginn tvær æfingar, miðvikudaginn tvö próf og big band tónleikar og svo á fimmtudaginn eitt próf og improv ii tónleikar. ég er ótrúlega tuskuleg í dag og líður þannig líka...þó að ég hafi farið í klippingu í gær. núna tekur við jólastúss og strangar æfingar fyrir gigg sem ég syng á 16. des í einhverju risajólapartýi fyrir eitthvað flugfélag. það er samt bara stuð. :-)

tónleikarnir með stórsveit concordia university voru mjög fyndnir. fyrir hlé söng ég "them there eyes" og "what a little moonlight can do", svo kom hlé og allt í góðu, allir í stuði og mikil stemmning. eftir hlé byrjaði svo bandið að spila og ég átti ekki að syngja fyrr en í fjórða lagi. í miðju öðru laginu fór rafmagnið af öllu háskólasvæðinu og allt í svartamyrkri. bandið hélt bara áfram að spila eins og ekkert hefði í skorist og hljómaði bara þrusuvel...þau hafa einmitt verið að kvarta yfir því að hljóðmennirnir (og konurnar) magni allt upp alltof mikið! bandið spilaði eftir minni allt lagið og náði að klára það án mikilla mistaka og fékk svona líka rosaklapp eftir það. svo þurftu allir að flýja úr húsi því öryggisljósin myndu ekki loga mikið lengur...við fórum því í annað hús þarna þar sem átti að vera eftirpartý. það dugði stutt því öryggisvörðurinn kom og rak okkur út. mér tókst líka að detta þarna einhvers staðar á rauðu hælunum mínum og fá ágætis sár á handlegginn...hehehe. svo skelltum við okkur á einhvern bar í nágrenninu og fengum smá fönk í æð (hljómsveit að spila gott fönk)...sem var asskoti gott. :-)

sunnudagur, desember 03, 2006



gleðilega aðventu!

:-)

laugardagur, desember 02, 2006

jamm. söng með big bandinu á miðvikudaginn á klúbbi útí bæ. það gekk ágætlega, fyrir utan að ég varð svolítið feimin þegar ég sá aðarar söngkonur út í sal. sjeim on mí.

í dag er ég að lesa djasssögu...fer í próf á miðvikudaginn. svo eru önnur próf og tvennir tónleikar í næstu viku.

nú er kvartettinn minn orðinn kvintett með tilkomu píanóleikara. það er bara fínt, meiri möguleikar og fleiri lög sem við getum spilað.

í dag byrjaði veturinn í montreal. það kom frost. í fyrradag var 16 stiga hiti! þetta veður.

strange fruit með billie holiday er ferlegt lag. in a good way. hrikalegt umfjöllunarefni en flutt á tilfinningaþrunginn hátt. ég mæli með að fólk fletti upp á "lynching" á google. óhugnanlegt.

ég er komin á kaflann um bebop og er að hlusta á "salt penuts" með dizzy...

ég hengdi upp jólaskraut um daginn, ætti eiginlega að taka mynd af því og setja hérna inn. jólaséríur og krans og alles, ótrúleg framtakssemi og huggulegheit. ég þarf að kaupa mandarínur og búa til jólalagaplaylista. ojeeeee...