FNUS!
ég er búin að vera með flensu síðan á fimmtudaginn í síðustu viku og orðin ansi leið á því. mikið svakalega getur verið leiðinegt að vera lasinn einn heima...tommi er sko í seattle. svo er ég líka að skrifa ritgerð í jazzsögu og hún er alveg ferlega löng og leiðinleg, sem reyndar hæfir kennaranum ágætlega því hann er ekki neitt til að hrópa húrra fyrir.
annars gleymdi ég alveg að segja fólki að fara að horfa á patrick watson á airwaves hátíðinni á íslandi. bassaleikarinn í þeirri hljómsveit er nefnilega líka í hljómsveitinni með tomma og góður vinur okkar og svo eru hinir í bandinu kunningjar okkar líka. ég bara missti algjörlega af þessu útaf geðveikinni í skólanum hjá mér. en ef einhver sem les þetta fór á tónleikana væri gaman að heyra hvernig þeim fannst.
ég get varla beðið eftir að komast í jólafrí...orðin ansi þreytt á því að hafa alltof mikið að gera. :-/