Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, október 20, 2006

fjúff....og taka andköf!

búin að vera fáránlega erfið vika með prófum og verkefnum og tónleikum og gvöð má vita hverju! sjæse hvað mér gekk illa í "sungið af blaði"prófinu mínu í gær.
deginum var samt bjargað af því mér gekk vel í því að syngja fyrir framan dómnefnd á eins konar söngráðstefnu sem var haldin í skólanum og aðrir skólar tóku líka þátt í. í gær var sumsé þessi ráðstefna haldin með fyrirlestrum og "master class" með þekktum söngkennurum í montreal. hluti af ráðstefnunni var að söngvarar fengu tækifæri til að syngja fyrir framan áhorfendur og fjóra dómara og fá svo seinna kommentin frá dómurunum. ég tók þátt og söng lag sem heitir "twisted" og er hratt og dáldið fríkað lag sem endaði í einhverri algjörri vitleysu á háu nótunum með aðra höndina upp í loftið. dómararnir hafa verið í skrýtnu skapi því þeir völdu mig ásamt þremur öðrum til að koma fram á tónleikum um kvöldið...og ég fékk viðurkenningu fyrir að vera "outstanding singer", ekkert slor. ;-)

nú er bara að anda smá og byrja svo að undirbúa nýja viku. og já, er einhver með uppástungu fyrir jólalag til að taka upp?

miðvikudagur, október 11, 2006

blogger er eitthvað að klikka núna og vill ekki sýna nýjar myndir.

ég er annars bara á kafi í heimavinnu og lærdómi og kem ekki upp úr fyrr en í jólafríinu held ég. núna á ég einmitt að vera að læra þrjú lög...

við fórum annars til st. sauveur um helgina og það var æði. við hittum jóhönnu, jóa, sigrúnu, halla og börn og slöppuðum af í heitum potti og átum kalkún. mikið svakalega var kalkúninn góður!

sunnudagur, október 08, 2006



St. Sauveur um helgina...

þriðjudagur, október 03, 2006

"if you have passion and believe in what you're doing, don't worry, invisible hands will open doors for you"

þetta sagði ferlega skemmtileg kona mér sem ég hitti áðan á leiðinni heim. hún hlammaði sér niður á útskot á einni kirkjunni hérna á leiðinni, klyfjuð pokum úr super-c. hún andvarpaði svo svakalega og sagði svo eitthvað hlæjandi og ég gat ekki annað en sagt henni að ég þekkti tilfinninguna. ég ræddi svo við hana í ábbygilega tuttugu mínútur um lífið og tilveruna. hún sagði mér að hún væri komin á eftirlaun, hún hefði verið lögfræðingur og að langalangaamma hennar hefði verið af einhverjum indjánaættum. þetta var svona kona með sítt grátt hár í snúð og í síðri, gulri regnkápu í gönguskóm...það er eitthvað svo huggulegt við svoleiðis konur. :-)

fyrr í dag þegar ég var að ganga inn í strætó með ipodinn í fullu svingi var eitthvað voðalegt kaos hjá aftari hurðinni og þegar ég sest loksins niður átta ég mig á því að ég hafði gengið framhjá unglingsstrák sem einhver óprúttinn náungi hafði kýlt í andlitið. gerandinn hafði svo flúið út þegar strætóinn lagði af stað aftur og skildi aumingja þolandann eftir í vagninum, algjörlega snargeggjaðan af bræði. þeir þekktust víst eitthvað og sá sem eftir sat tjáði farþegum það að hann ætlaði sko að myrða þennan asna...ég vona nú að hann hafi náð að jafna sig eftir þetta greyið. hann var orðinn stokkbólginn þegar hann fór út. :-/