Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, september 29, 2006

er ekki kominn tími á smá mont af minni hálfu? ég held það bara.

ég var að fá skilaboð á myspace síðunni minni um að geisladiskurinn minn (demóið okkar í kvartettinum) sé kominn í topp tíu yfir mest spiluðu jazzdiskana á WMPG útvarpsstöðinni í portland, maine. ég sendi honum bob diskinn fyrir hann að hlusta á og honum leist svona svakalega vel á að nú spilar hann þetta í gríð og erg á útvarpsstöðinni...hahaha. snilld!

ég er bara orðin ýkt heimsfræg í portland. jeeeeee...

miðvikudagur, september 27, 2006

damn...ég var búin að búa til bloggfærslu en hún týndist!

ég ætlaði nú bara að láta vita að ég er enn á lífi og löt sem aldrei fyrr að blogga.

það er svo ferlega mikið að gera hjá mér í skólanum að ég hef varla tíma til að anda og þess vegna geri ég ekki ráð fyrir mikilli afkastasemi hér í nánustu framtíð.
jazz improv II próf í dag og jazzsögupróf á föstudaginn. slatti að lesa og fullt af lögum sem ég þarf að þekkja og geta sagt hver spilar og hvenær tekið upp o.s.frv. elstu lögin hljóma öll eins og sögubókin mín gerir efnið svo leiðinlegt með kraðaki af ártölum og nöfnum en litlu samhengi.

ofsalega er þetta nú þreytt hjá mér...ætli það sé nokkur sem les þetta líka. ólíklegt.

ég set eina mynd í lokin til að hressa upp á þetta hjá mér.


ég og tommi á toppnum á mont tremblant.

miðvikudagur, september 13, 2006

ég er í sjokki.

það var skotárás gerð í skóla sem er hérna í kortérsgöngufjarlægð frá húsinu okkar. þessi skóli er eins konar framhaldsskóli/háskóli (college) og er beint á móti verslunarmiðstöð sem ég fer oft í. ég var þarna í fyrradag síðast! ég hefði allt eins getað verið að labba þarna ef ég hefði ekki verið í tíma í skólanum mínum! hrikalegt!!
einhver gæi með stóran riffil bara byrjaði að skjóta fólk úti á götu og svo inni í skólanum. skaut á líklega tuttugu manns og núna er búið að staðfesta að einn sé látinn fyrir utan hann sjálfan. úff.
vinkona mín úr skólanum var að tala við mig og hún var þarna þegar þetta gerðist...sá bara fullt af krökkum koma hlaupandi og grátandi og ákvað bara sjálf að hlaupa heim til sín. systir hennar lá sofandi heima en átti að vera í þessum skóla akkúrat þá!

annars er allt gott að frétta af mér og okkur. skólinn er byrjaður og svakalega mikið að gera. ég hef bara ekki haft tíma til að blogga!
síðustu helgi fórum við tommi til mont tremblant í fertugsafmæli. það er alltaf gaman að koma til mont tremblant...það er svo svakalega fallegt þar og huggulegt.

sjæse hvað maður er hissa á svona klikkuðu liði sem fer bara að skjóta mann og annan. hvað í ósköpunum gengur þeim til???

laugardagur, september 02, 2006

íbúðin okkar lyktar af harðfisk.

nú er ég komin aftur til montreal og farin að undirbúa mig undir skólann. ég hélt reyndar að hann byrjaði á mánudaginn en þá er labour day þannig að ég hef einn dag til viðbótar í frí. jei!

svakalega var annars gaman hjá mér að kíkja aðeins til íslands og ná loksins að hitta fólk sem ég hef ekki hitt í ár og öld. og svakalega á ég skemmtilega fjölskyldu sem nennti að hjálpa mér að undirbúa partý og svona. þeinks jú gæs!
britta litla systir er snillingur!

ég upplifði svakalegt sörpræs þegar tommi kom óvænt í afmælispartýið. ég var búin að vera að tala við hann á netinu af og til yfir daginn og daginn áður líka og á þeim tímum sem það hefði ekki passað að hann væri að fara í flugvél eða keyra á milli montreal og boston. þess vegna kom bara "does not compute" upp í hugann á mér þegar ég sá hann birtast þarna með hárkollu í fötum af óskari. ég sá alveg að þetta var hann en samt sem áður hugsaði ég að það gæti bara ekki verið og þarna væri kannski einhver kominn sem væri að leika hann! bjáni getur maður verið. hehehe...