Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

nú er ég þrítug og orðin ofboðslega virðuleg og þroskuð. eða þannig.

þetta er búin að vera alveg frábær ferð. afmælisdagurinn var fráááááábær, afmælisrokkpartýið var frááááááááááábært og síðustu dagar hafa verið alveg frááááááááábærir. highlights úr ferðinni:
fórum á sjávarkjallarann á afmælinu mínu og borðuðum ótrúlega góðan mat
fór í bæinn með brittu sys og keypti rokkdót
undirbjó rokkpartý með múttu og brittu
rokkpartýið
tommi gunn mætti surprise í partýið og ég hef aldrei verið jafnhissa á ævinni
helgin með tomma gunn á íslandi
hvanneyri, borgarfjörður með mormor, lillu, hans, múttu og brittu
afmælið hennar lillu
...

hversu kúl erum við???

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

fyrst ég er ennþá tuttuguogeitthvað ætla ég að gera eitthvað köööörrrrreeeiiiiisí...

typpi!


ómægod...ég er alveg svakaleg. að segja svona lagað fyrir framan alþjóð og svei mér þá. það held ég nú.

til hamingju ísland með að ég fæddist hér fyrir nítján árum eða svo.

óver end át

sunnudagur, ágúst 20, 2006

skruppum aðeins til kaliforníu við hjónin. létum engan vita og ég var bara í afslappelsi og rólegheitum. hehehe...
tommi þurfti að fara að vinna og honum datt í hug að spyrja mig í miðri þarsíðustu viku hvort ég vildi ekki bara koma með honum í viku til kaliforníu. mér fannst það bara afskaplega sniðugt og alveg til í að rifja upp hvernig maður keyrir bíl og liggur í sólbaði. :-)

á morgun fer ég svo til íslands til að halda upp á afmælið mitt. það verður stuð...en líka soldið svekk af því að tommi gunn kemur ekki með. óvell, ég verð bara að reyna að verða þrítug sjálf!

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

tékkið á mér á myspace, komin ný mynd og soldið nýtt lag líka...og nýtt lúkk. :-)

ég ætla svo að gera breytingar á stinastud.com einhvern tímann bráðum...búa til flotta söngkonusíðu. hehehe...

mánudagur, ágúst 07, 2006

fyrir tveimur árum síðan í dag gengum við tommi í hjónaband. við eigum því tveggja ára brúðkaupsafmæli í dag og gætum ekki verið ánægðari! við héldum upp á það í gær með því að borða góðan mat og horfa á næstum heila fyrstu seríu af 24 (vöktum langt fram á nótt)! svo fékk ég nú líka blóm frá eiginmanninum og ótrúlega gott súkkulaði sem við gæddum okkur á fyrir framan sjónvarpið. súkkulaðihúðuð bláber eru algjört lostæti!

svona litum við út fyrir tveimur árum síðan...á okkar besta degi...


og svona lítum við út núna! það sem hjónaband gerir manni!!!

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

ronry....so ronry...

enginn sem kommentar hjá mér...buhuuuuuu. eridda svona ofsalega leiðinlegt blogg? ég sem setti mynd og lag og allt...*grenj*

Svona var ég í gærkvöldi eftir að hafa hjólað heim í hellidembu af tónleikum með system of a down. við óðum í drullu á tónleikasvæðinu, hoppuðum um og dönsuðum eins og bjánar og hjóluðum svo í þrumuveðri heim...alvöru rokk og ról!

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

pssssst...það er komið nýtt lag á myspaceið mitt...það heitir black coffee. ekki segja neinum.

ekki mikið að frétta af mér frekar en fyrri daginn.

við tommi erum að fara á tónleika í kvöld með system of a down. hann fékk miða á tónleikana í afmælisgjöf. þetta eru útitónleikar og því vonandi að það haldist þurrt í kvöld...spáin segir þumuveður! jæks.

hey, svo ætla ég að halda afmælisveislu á íslandi. hver vill mæta? hún verður líklega 25.ágúst að kveldi til...