Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júlí 29, 2006

þá er það ákveðið!

stína stuð verður á íslandi 22. til 31. ágúst og hefur það að markmiði að hitta sem flesta og fara í sem flest partý. byrjað verður að taka við bókunum og boðskortum á morgun. hehehe...

hey now!

mánudagur, júlí 24, 2006

grattis på namnsdagen ég!

nú þarf ég að fara að ákveða hvað ég ætla að gera á afmælisdaginn minn...þegar ég verð ekki lengur tuttuguogeitthvað. hehehe...any ideas?

laugardagur, júlí 22, 2006

góðan og blessaðan!

æfingin í gær var þrusustuð. ótrúlega gaman að hlusta á svona vana gæja spila...náttúrulega unun að hlusta á eiginmanninn ;-) nú er bara að vona að við fáum að spila einhvers staðar.

miðvikudagur, júlí 19, 2006

líbanon, írak, ísrael, palestína, afganistan...mæ ó mæ.

gleðifréttir dagsins eru að við tommi erum líklega að byrja saman í coverbandi! ég var búin að segja við trommu- og bassaleikara sem ég þekki að ég ætlaði að spila með þeim einhvern tímann og núna er komið að því. :-) þeir eru báðir vanir menn og hafa margra ára reynslu á bakinu, eins og tommi...hehe...ég er viðvaningurinn í bandinu og er það bara ágætt, þá læri ég eitthvað. nú þurfum við bara að finna góðan hljómborðsleikara og fara að æfa. læt ykkur vita hvað gerist.

það er búið að vera alltof heitt hérna undanfarið...maður getur varla farið út án þess að drukkna úr svita. eiginlega of heitt til að vinna í taninu...hahaha. hehe. hehh.

hvað er þetta annars með fólk? af hverju er enginn búinn að melda sig í heimsókn til mín í ágúst? koma svo...jú ken dú itt!

föstudagur, júlí 14, 2006

mánudagur, júlí 10, 2006

...aaaaaaand i'm back!

búið að vera ofboðslega mikið að gera hjá okkur. júlía, gunnar og óskar komu til okkar um miðjan júní og voru hér í stuði...við fórum í dýragarð, á strönd, í bæinn, upp á fjall og skemmtum okkur úti á svölum. strákarnir fóru svo á formúluna að horfa á pínulitla bíla keyra með ógnarhraða með gífurlegum hávaða á meðan við krakkarnir fengum okkur ís og fórum í fótabað til að kæla okkur á svölunum.

við tommi fórum svo í ferðalag saman...að heimsækja tomma bró í london og mormor í kungälv. það var alveg frábært að hitta alla og heimsækja æskuslóðir í svíþjóð. ég var búin að gleyma svo miklu og er búin að sakna allra svo mikið að það var alveg nauðsynlegt að heilsa aðeins upp á london og svíþjóð.

við komum svo við á íslandi á bakaleiðinni og reyndum að gera eins mikið og við gátum...náðum að hitta fáa og ábyggilega einhverjir fúlir út í okkur fyrir það...sorrí stína...next time. við náðum hins vegar að mæta í og gaula smá í brúðkaupið hjá davíð og söru. alveg var það frábær skemmtun og ótrúlega gaman að hitta alla sem þangað mættu. brúðhjónin náttúrulega geislandi af ást og litla krúttið þeirra hann alvar ofboðslega sætur.

nú tekur alvaran við, æfingar og spilerí vonandi hjá mér og vinnan hjá tomma (ásamt rokki náttúrulega). ég set kannski inn einhverjar myndir við tækifæri. :-)