Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 18, 2006

britta lil'sys á afmæli í dag...



þessi mynd er í tilefni af því. :-) hehehe...hún var tekin fyrir lööööngu síðan í afmælisveislu hjá mér í london. óskýr kannski...óvell.

við fórum á strönd í dag í 30° hita...mikið stuð. í gær fórum við í bíltúr, labbitúr, annan labbitúr, höfðum pulsupartý á svölunum og alls konar...taumlaus sumarstemmning. jess!!

þriðjudagur, júní 13, 2006

aðalgæinn hann tommi gunn á afmæli í dag!

til hamingju með daginn ástin mín. :-)

sunnudagur, júní 11, 2006

jamm og jæja og svei mér þá, það held ég nú!

ég tók þátt í kvennahlaupinu hérna í montreal...á íslenska vísu. það er sumsé íslendingaklúbbur hérna og í tilefni af kvennahlaupinu á íslandi var hlaup haldið hér og meira að segja sent eftir stuttermabolum og medalíum til að hafa þetta alvöru. :-)

ég lokkaði (labba+skokka) 3km og gekk bara vel...hljóp kannski einn þriðja...ekki mikið en þetta kemur allt saman. og hér eru nokkrar myndir af mér í sigurvímu eftir að hafa fengið medalíu í fyrsta skipti í mööööörg ár. hehehe...

nohh...bara medalía...


er hún annars alveg alvöru?


jess...æ löööööv jú...

þriðjudagur, júní 06, 2006

það er steik úti.

ég er ennþá í ískaffinu. ofsalega svalandi í heitu veðri. :-)

í gær spilaði ég á söfnunarsamkomu hjá einhverju snobbuðu ecogrænarkítektaeitthvaðsjittfélagi. okkur var tjáð að þarna yrði "the rich left" (sumsé ríkt vinstrisinnað fólk) og við ættum að vera bakgrunnstónlistin. ég spilaði fyrst eitt sett með nils gítarleikara, bara við tvö og gekk það bara þrusuvel. ég var náttúrulega í rauðu ofurpæjuskónum mínum og fékk mörg komment út á þá...hehehe. svo eftir að búið var að halda fullt af einhverjum leiðinlegum ræðum á frönsku þá spiluðum við nokkur lög í kvartett (ég, nils á gítar, trommari og bassaleikari) sem gekk bara líka þrusuvel. það var svo heitt þarna inni að greyið bassaleikarinn var að fá aðsvif held ég, í jakkafötum með bindi. ég var nógu og sveitt í pilsi og þunnum bol!
nú er bara að vona að fólkið þarna inni hafi verið yfir sig hrifið og eigi eftir að bóka okkur á skemmtanir í sumar. :-)

hver vill koma í heimsókn til mín í ágúst? anyone?