engar afsakanir á bloggleysi...ég blogga bara þegar mér sýnist og hananú!
sit hér og borða ávexti og drekk ískaffi...já kaffi! reyndar með sætuefnum og mjólk útí en engu að síður kaffi og það kalt! aldrei hefði ég trúað þessu.
mamma og pabbi áttu afmæli 27. og 29. maí, til hamingju með það ágætu hjón!
veðrið er búið að vera með eindæmum gott undanfarið og ég hef getað farið út að labba, hjóla, smá í sólbað og gafst upp á línuskautum líka. svekk.
við tommi áttum fullkominn sumardag á sunnudaginn. byrjuðum á því að fara í laaaangan göngutúr í sól og hita, fórum svo á markaðinn og fengum okkur að borða...svo út í sólbað...svo út að borða í gamla bænum (sem er alveg ofsalega fallegur og rómó) og svo heim að horfa á tv með þrjár lindt súkkulaðikúlur og appelsínugos. þar hafið þið það, fullkominn sumardagur.
nú fer að líða að því að krakkarnir komi til okkar og óskar mágur, þá verður fyrst stuð hjá stínu...hehehe. ég er strax farin að æfa mig í rassadansinum. hehehe.



