Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, apríl 30, 2006

ég get ekki sofið frekar en fyrri daginn. fúlt mál það.

mér leiðist. búin að skoða netið í heild sinni. ég fann fólk sem ég hef ekki hitt í mörg, mörg ár og sá fyndnar og ekki fyndnar myndir. ég las blogg hjá fólki sem ég þekki ekki neitt og skoðaði öll íslensk veftímarit sem ég komst í. ég held ég sé komin með svona information overload. kannski best að skella sér bara á einhverja eyðieyju sem er úr sambandi við umheiminn til að núllstilla sig?

later.

föstudagur, apríl 28, 2006

fagn

nú er ég komin í sumarfrí í skólanum. jíha!

ég fór út á lífið í gær með vinum úr skólanum og kíkti á smá lifandi tónlist. strákur sem er með mér í skólanum spilar á hljómborð í hljómsveitinni panacea og við fórum og tékkuðum á honum í gærkvöldi. bandið var þrusugott en dáldið sýrukennt til lengdar. ég var ekki mjög lengi og tók bara leigubíl heim...ég var orðin pínulítið hrædd að vera á vappi niðrí bæ alveg ein. ég gekk framhjá einhverjum gæjum sem voru að tala saman og það eina sem ég heyri einn þeirra segja var: "kill that bitch"...svo ég flýtti mér bara upp í næsta leigubíl. :-/

ég er að fara að hjálpa vinkonu minni að flytja núna á eftir. hún og mamma hennar eru á leiðinni með óhreinan þvott...það bilaði víst þvottavélin hennar á verstu stundu. dæmigert. ágætt að geta aðstoðað í neyð. :-)

miðvikudagur, apríl 26, 2006

próf

ég á bara eitt próf eftir. fer í það í fyrramálið klukkan tíu og verð vonandi ekki of lengi. prófið gengur út á að greina hljómagang í einhverju kórverki eftir bach. stuð.

ég hef ekki mikið að segja annað...datt bara í hug að vera með smá öppdeit, láta vita að ég sé ekki gufuð upp.

hvernig á ég að fagna próflokum á morgun? any ideas?

föstudagur, apríl 21, 2006

google

tommi lenti í google brandara í gær. hann var að fara í gegnum öryggisleitina á flugvellinum og var einhverra hluta vegna í google bol (sem gerist oftar en ekki...það flæðir allt í slíkum bolum hérna heima). það pípti í hliðinu og það þurfti að leita á honum og þá sagði náttúrulega einhver sérlega fyndinn "hey, you're searching google". verrí fönní finnst ykkur ekki?
annars er ég ánægð með gengið á google núna...held að það sé allt tomma að þakka. hann er svo dúúúúúúúúúúlegur.

ég svaf kannski þrjá tíma í nótt. þurfti bara ekki að sofa meira. svo fékk ég gífurlega löngun til að fara út í hjólatúr, tók mig til og dustaði rykið af hjólinu, pumpaði í dekkin og skellti mér út í gullskónum mínum. brilljant veðrið líka.

mér finnst ótrúlega fyndið að tom cruise og brooke shields hafi eignast barn sama dag og á sama sjúkrahúsi.

fimmtudagur, apríl 20, 2006

mah babe's goooone, oh yah mah babe's goooone...

tommi er farinn til íslands og ég er aaaalveg að fara í frí í skólanum. ein vika eftir. æ ken dú itt.

í dag fór ég og lét endurgera fjögur göt í eyrun á mér...var alltaf með þrjú og þrjú og langaði að vera meira pönk. mamma ertu nokkuð hneyksluð?
svo keypti ég mér gulllitaða strigaskó í verðlaun fyrir að hafa staðið mig vel í söngprófinu í dag. lét ekkert á mig fá þótt jeri brown væri með stæla. hehehe...söng bara þeim mun betur. :-)

ég var að pæla í því í dag þegar ég sat í lestinni hvað mér finnst gott að ég umgengst alls konar fólk...fólk sem hefur það gott og á pening, fólk sem hefur það gott og á ekki pening, fólk sem hefur það slæmt og á pening, fólk sem hefur það slæmt og á ekki pening, o.s.frv. það heldur manni einhvern veginn í raunveruleikanum, keepin' it real sko. ekki að ég vilji að fólk í kringum mig hafi það slæmt og eigi ekki pening, það bara er þannig stundum. ég fór nefnilega að hugsa um þetta þegar ég labbaði inn í metróið að ef ég væri alltaf á bíl og væri kannski að vinna með vel menntuðu og vel stæðu fólki þá myndi ég ábyggilega bara þekkja fólk á svipuðu reki og mér finnst einhvern veginn eins og ég væri að fara á mis við eitthvað þá. eins og ég yrði svolítið ótengd við restina af heiminum. þarf maður ekki smá aðhald? það er ekki gott að gleyma því að sumir eiga ekki neitt og ef maður sér það bara í sjónvarpinu og les um í blöðum þá hefur það ekki næg áhrif á mann held ég. munum bara að vera þakklát. :-)

það er búið að vera bjútífúl veður hjá mér núna undanfarið...ég er meira að segja farin að ganga í sandölum og sokkabuxnalaus í pilsi. draumur í dós.

miðvikudagur, apríl 19, 2006

ég er með huge erythema nodosum á löppinni. fékk stera í dag og verð líklega massi á morgun. ekki láta ykkur bregða þó ég syngi tenór eftir þetta. hehehe.

ég fer í söngpróf á fimmtudaginn og þrjú próf í næstu viku. líst ekkert á þetta, er komin í sumarfrí í huganum. bleeehhhh...

ég get ekki sofið. er í sterastuði.

það verða 20° á morgun. svít.

mér finnst jane fonda flott. vissuð þið að hún var 45 ára þegar hún gaf út fyrsta líkamsræktarvídeóið sitt?

hvað er svo með tom cruise? hann er genginn af göflunum miðað við síðustu fréttir. maðurinn ætlar að borða fylgjuna (ég veit að það er gert í sumum löndum/þjóðflokkum/cults....en samt) og katie má ekki gefa frá sér neitt hljóð í fæðingunni. meira bullið. hann hlýtur að vera gay.

ég eldaði ljúffengt lambalæri í páskamatinn og við tommi fengum okkur smávegis íslenskt nammi til að fagna upprisu holdsins (tvírætt?). amen.

sunnudagur, apríl 16, 2006

Gleðilega páska!!!

miðvikudagur, apríl 12, 2006

gærdagurinn var svakalegur.

ég vaknaði með svakalegan krampa í maganum og gat mig hvergi hreyft í einhvern tíma. tommi hjúkraði mér og allt lagaðist á endanum sem betur fer. úff púff. ég sumsé missti af tveimur tímum í skólanum og þetta voru síðustu tímar ársins.
ég fór svo í skólann í þennan eina tíma sem var eftir, jazz improv I með Charles Ellison sem kennara. við vorum búin að ákveða að hafa nokkurs konar partý, allir komu með drykki og eitthvað snarl og kennarinn bauð upp á pizzur og vín...hehehe. þegar búið var að stilla öllu upp á borðum inni í skólastofu og farið að opna vínflöskurnar strunsar inn gráhærður maður með skegg í skítugum gallabuxum. ég gat ekki hugsað mér hvað þessi maður var að gera þarna en strunsið hans minnti mig örlítið á pabba minn. svo byrjar hann að tala og hlæja og ég sný mér að dave bassaleikara og spyr hvaða maður þetta sé eiginlega. þá segir hann "it's Vic Vogel man...he's hilarous." ég sný mér við og virði þennan mann fyrir mér. hann er strax kominn með hóp af ungu fólki í kringum sig sem horfir á hann spennt og brosandi á meðan hann reytir af sér brandarana einn af öðrum. ég hef oft heyrt talað um Vic Vogel enda er hann einn af feðrum jazzins í kanada. hann hefur spilað með öllum þessum stóru og leikið undir hjá tony bennett, ertha kitt, shirley maclaine, paul anka og ég veit ekki hvað og hvað...tékkið á Vic Vogel.
eníveis...eftir nokkur rauðvínsglös var hann kominn í þrusustuð og það var ákveðið að það væri ekki hægt að hafa partý með vic án þess að heyra hann spila á píanóið. hann hlammaði sér fyrir framan hljóðfærið og Charles stingur upp á að taka in a mellow tone. Vic byrjar og þeir sem þora grípa hljóðfærin sín og spila með. ég sat bara tiltölulega aftarlega og var hálfhrædd við þennan háværa og brjálaða mann. á meðan verið er að spila fer hann svo að stappa í gólfið og horfa illilega á bassa- og trommuleikarann og öskrar svo á þá að það vanti í þá allan kraft, þeir séu að hægja á! svo lýkur laginu og hann fussar og sveiar yfir tímanum hjá "rhythm section"-inu og segir svo "if you keep on doing that, i'll kill you!!" og allur bekkurinn springur úr hlátri. svo horfir hann yfir bekkinn og segir "where are all the singers?" og ég brást ósjálfrátt við og kallaði "hérna..." en áttaði mig svo á að nú þyrfti ég að syngja eitthvað. ojæja, ég gekk til hans og Charles stakk upp á að við myndum taka old folks og annar kennari ákvað að spila með á gítar (Gary Schwartz ). svo byrjar vic að spila intro og ég horfi á hann og er að reyna að átta mig á því hvert hann ætlar með þetta, þá glottir hann og segir "i'll tell you when" hahaha. ég syng lagið og það gengur bara vonum framar, enda ekki annað hægt með svona góðum tónlistarmönnum. eftir sólókaflana syng ég svo lagið aftur og þá var vic kominn í svakalegt stuð, kallar á mig "sing that song" og skiptir svo allt í einu um tóntegund og ég reyni að elta. svo kemur að endinum og þá ætlar allt hann bókstaflega að sprengja píanóið og fer sjálfur að syngja "old folks, old folks..." hehe...ég bara reyndi að fylgja með og svo bara búmm allt í einu þögn og þá átti ég náttúrulega að syngja síðustu línuna en fattaði það ekki fyrr en Charles sagði "you're on"...hahaha! ég tók í höndina á vic og þakkaði honum fyrir og hann sagði við mig "it was my pleasure, you sing good!" sem mér þótti afar vænt um að heyra. :-)
frábær tími og frábær maður.

sunnudagur, apríl 09, 2006

vor.

ég fór út á markaðinn í dag og keypti páskaliljur og greinar. ég var búin að kaupa máluð gerviegg og ætla að skreyta smá núna...í fyrsta skipti í hjúskapartíð okkar tomma ætla ég að hafa páskalegt um páskana. líst vel á það.

tommi var að spila á tónleikum í gær á einhverjum litlum stað í bænum og það var hressandi. þeir eru bara alltof góðir fyrir svona litla staði...þeir eiga heima á stóru sviði. svo eru þeir líka allir sætir...sérstaklega tommi. híhí. þekkir ekki einhver fólkið sem stjórnar airwaves og getur fengið þá til að spila þar í ár? það væri snilld.

við erum farin að plana sumarið hjá okkur. krakkarnir koma til okkar í júní og óskar bróðir hans tomma...þá verður sko STUUUUUUUÐ! svo förum við tommi að heimsækja mormor í svíþjóð. ég hef ekki heimsótt hana í svoooooooo langan tíma og tommi hefur aldrei komið til kungälv. ég eyddi jú góðum hluta minna æskusumra þar í ævintýrum með systkinum mínum og frændfólki. fór til dæmis í tónleikaferðalag með hljómsveit móðurbræðra minna þegar ég var sex ára. síðan þá hefur mér alltaf þótt góð lykt af hljómsveitagræjum...sambland af svona hljóðtækja-, bjór- sígarettu og rafmagnslykt. i love it!