Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, mars 30, 2006

æ, ég nenni einhvern veginn ekkert að blogga þessa dagana. mikið að gera í skólanum og almennt ekkert að segja annað en það.

ég er með hausverk og hnakkaverk. fór í nudd og það lagaði dæmið smávegis en þarf að fara aftur og að gera einhverjar æfingar og dæmi. ferlega pirrandi. pirr. pirr.

later

þriðjudagur, mars 21, 2006

góður dagur í dag.
mér gekk svakalega vel í skólanum og hann charles ellison hrósaði mér svo hrikalega að ég átti bara ekki til orð. það eru alltaf svona hálfblendnar tilfinningar við að fá mikið hrós. maður er ánægður en samt hræddur um að standa svo ekki undir væntingum. óvell...ég bara æfi mig meira og vona að ég valdi ekki vonbrigðum. :-)

hvað er annars málið með silvíu nótt og allar stelpurnar/konurnar sem vilja vera eins og hún? ég rekst á myndir alltof oft af fólki í búning eins og silvía nótt...er þetta ekkert að verða gamalt? mér myndi líða eitthvað svo kjánalega í svona búning...æi ég veit ekki, kannski er ég bara ekki að fatta djókið nógu vel.

hefur einhver lent í eftirfarandi? maður týnir einhverju og leitar í heilan dag að því...útum allt og verður ótrúlega pirraður á því og fúll og dagur fer bókstaflega útum þúfur...svo finnur maður allt í einu hlutinn og verður svo ánægður að maður gleymir algjörlega að maður var gjörsamlega brjálaður yfir því að vera að eyða deginum í að leita að dótinu. merkilegt hvað maður er stundum fljótur að gleyma.

úff ég get ekki beðið eftir vori...sumri...hlýju...blómum og sólbrúnku. við tommi ætlum að verða heltönuð úti á svölum í sumar og ætlum svo að fá okkur neonhvítar tennur og laxableik sundföt úr krumpuefni. við verðum flott!

miðvikudagur, mars 15, 2006

tommi er alveg googlaður...googleblog
ég held að hann sé að verða svona software celebrity. þarf maður þá að fara að passa sig á svona papahackerz? smá grín.

ég er annars að fara á eftir að taka upp raddir fyrir tölvuleik. veit ekki hvaða tölvuleik en ég held að ég þurfi að vera með þýskan/suður-amerískan og norrænan hreim...hehehe. það versta við svona er að leika öskrin (sumsé þegar persónur eru kýldar, skotnar og drepnar). spurning hvort maður eigi að vera að styðja svona ofbeldisleiki...ef þetta er ofbeldisleikur þ.e? wok the heck, ég fæ allavega eitthvað smá borgað fyrir það. hmmm...

föstudagur, mars 10, 2006

það er 6 stiga hiti úti. hallelúja!
ætli vorið sé kannski á næsta leyti? er kannski of mikil bjartsýni að halda það?

nú er nóg að gera í skólanum hjá mér...tvennir tónleikar í þarnæstu viku. ég get nú ekki kvartað yfir því enda er það að syngja á tónleikum það skemmtilegasta sem ég veit. :-)

við tommi sungum og spiluðum á þorrablóti íslendinganna hérna í montreal um síðustu helgi. við ákváðum að spila þrjú lög sem teljast tiltölulega hefðbundin og íslensk, sumsé krummi svaf í klettagjá, fröken reykjavík og vísur vatnsenda-rósu. það gekk ágætlega bara og svo vorum við svona hálfpartinn klöppuð upp og höfðum í gamni litið á íslenska eurovison lagið...hehhh...svo við ákváðum að spila það. ég veit ekki hversu vel það féll í kramið enda slatti af eldri vestur-íslendingum þarna sem fattaði kannski ekki alveg djókið.

æ, ég ætlaði að skrifa eitthvað æðislega sniðugt en er bara alveg andlaus. einhverjar hugmyndir?

laugardagur, mars 04, 2006

þrjár myndir...ég í new york með vini mínum, tommi á ströndinni með tærnar í kyrrahafinu og ég á ströndinni hjá seascape.