ég er grútsyfjuð.
við flugum frá san jose í gær og millilentum í minneapolis. það var skrýtið að koma í frostið og kuldann hérna eftir að hafa verið í sólbaði í fyrradag.
eins og ég minntist á áður þá fór tommi á eitthvað stjórnunarnámskeið í vikunni og ég fékk að fara með á hótelið þar sem það var haldið. þetta var svona resort...hvað heitir það á íslensku? niðri við laaaanga sandströnd og í litlu þorpi sem kallast seascape. það má reyndar finna þetta hér: seascape resort. við vorum þarna í tvo og hálfan dag en ég hitti tomma lítið þar sem hann var á fullu að klifra upp einhverja trjástaura, kasta boltum og raða sér í hópa á þessu námskeiði. ég fór í sund, gekk á ströndinni, baðaði tásurnar í kyrrahafinu, keyrði til capitola og skoðaði mig um og náði almennt að slaka mjög vel á. þetta var alveg yndislega fallegur staður og ströndin alveg guðdómleg. á þessum tíma ársins er ekki svo mikið fólk þarna enda ekki alveg nógu og heitt til að vera í sólbaði.
ég set kannski inn einhverjar myndir þegar ég er búin að koma þeim inn á tölvuna. :-)



