ókei. komin í "jólafrí", allavega frí í skólanum. síðasta vika var út í hött! á mánudaginn voru tvær æfingar, þriðjudaginn tvær æfingar, miðvikudaginn tvö próf og big band tónleikar og svo á fimmtudaginn eitt próf og improv ii tónleikar. ég er ótrúlega tuskuleg í dag og líður þannig líka...þó að ég hafi farið í klippingu í gær. núna tekur við jólastúss og strangar æfingar fyrir gigg sem ég syng á 16. des í einhverju risajólapartýi fyrir eitthvað flugfélag. það er samt bara stuð. :-)
tónleikarnir með stórsveit concordia university voru mjög fyndnir. fyrir hlé söng ég "them there eyes" og "what a little moonlight can do", svo kom hlé og allt í góðu, allir í stuði og mikil stemmning. eftir hlé byrjaði svo bandið að spila og ég átti ekki að syngja fyrr en í fjórða lagi. í miðju öðru laginu fór rafmagnið af öllu háskólasvæðinu og allt í svartamyrkri. bandið hélt bara áfram að spila eins og ekkert hefði í skorist og hljómaði bara þrusuvel...þau hafa einmitt verið að kvarta yfir því að hljóðmennirnir (og konurnar) magni allt upp alltof mikið! bandið spilaði eftir minni allt lagið og náði að klára það án mikilla mistaka og fékk svona líka rosaklapp eftir það. svo þurftu allir að flýja úr húsi því öryggisljósin myndu ekki loga mikið lengur...við fórum því í annað hús þarna þar sem átti að vera eftirpartý. það dugði stutt því öryggisvörðurinn kom og rak okkur út. mér tókst líka að detta þarna einhvers staðar á rauðu hælunum mínum og fá ágætis sár á handlegginn...hehehe. svo skelltum við okkur á einhvern bar í nágrenninu og fengum smá fönk í æð (hljómsveit að spila gott fönk)...sem var asskoti gott. :-)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home