"if you have passion and believe in what you're doing, don't worry, invisible hands will open doors for you"
þetta sagði ferlega skemmtileg kona mér sem ég hitti áðan á leiðinni heim. hún hlammaði sér niður á útskot á einni kirkjunni hérna á leiðinni, klyfjuð pokum úr super-c. hún andvarpaði svo svakalega og sagði svo eitthvað hlæjandi og ég gat ekki annað en sagt henni að ég þekkti tilfinninguna. ég ræddi svo við hana í ábbygilega tuttugu mínútur um lífið og tilveruna. hún sagði mér að hún væri komin á eftirlaun, hún hefði verið lögfræðingur og að langalangaamma hennar hefði verið af einhverjum indjánaættum. þetta var svona kona með sítt grátt hár í snúð og í síðri, gulri regnkápu í gönguskóm...það er eitthvað svo huggulegt við svoleiðis konur. :-)
fyrr í dag þegar ég var að ganga inn í strætó með ipodinn í fullu svingi var eitthvað voðalegt kaos hjá aftari hurðinni og þegar ég sest loksins niður átta ég mig á því að ég hafði gengið framhjá unglingsstrák sem einhver óprúttinn náungi hafði kýlt í andlitið. gerandinn hafði svo flúið út þegar strætóinn lagði af stað aftur og skildi aumingja þolandann eftir í vagninum, algjörlega snargeggjaðan af bræði. þeir þekktust víst eitthvað og sá sem eftir sat tjáði farþegum það að hann ætlaði sko að myrða þennan asna...ég vona nú að hann hafi náð að jafna sig eftir þetta greyið. hann var orðinn stokkbólginn þegar hann fór út. :-/

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home