Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, október 20, 2006

fjúff....og taka andköf!

búin að vera fáránlega erfið vika með prófum og verkefnum og tónleikum og gvöð má vita hverju! sjæse hvað mér gekk illa í "sungið af blaði"prófinu mínu í gær.
deginum var samt bjargað af því mér gekk vel í því að syngja fyrir framan dómnefnd á eins konar söngráðstefnu sem var haldin í skólanum og aðrir skólar tóku líka þátt í. í gær var sumsé þessi ráðstefna haldin með fyrirlestrum og "master class" með þekktum söngkennurum í montreal. hluti af ráðstefnunni var að söngvarar fengu tækifæri til að syngja fyrir framan áhorfendur og fjóra dómara og fá svo seinna kommentin frá dómurunum. ég tók þátt og söng lag sem heitir "twisted" og er hratt og dáldið fríkað lag sem endaði í einhverri algjörri vitleysu á háu nótunum með aðra höndina upp í loftið. dómararnir hafa verið í skrýtnu skapi því þeir völdu mig ásamt þremur öðrum til að koma fram á tónleikum um kvöldið...og ég fékk viðurkenningu fyrir að vera "outstanding singer", ekkert slor. ;-)

nú er bara að anda smá og byrja svo að undirbúa nýja viku. og já, er einhver með uppástungu fyrir jólalag til að taka upp?