Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, september 13, 2006

ég er í sjokki.

það var skotárás gerð í skóla sem er hérna í kortérsgöngufjarlægð frá húsinu okkar. þessi skóli er eins konar framhaldsskóli/háskóli (college) og er beint á móti verslunarmiðstöð sem ég fer oft í. ég var þarna í fyrradag síðast! ég hefði allt eins getað verið að labba þarna ef ég hefði ekki verið í tíma í skólanum mínum! hrikalegt!!
einhver gæi með stóran riffil bara byrjaði að skjóta fólk úti á götu og svo inni í skólanum. skaut á líklega tuttugu manns og núna er búið að staðfesta að einn sé látinn fyrir utan hann sjálfan. úff.
vinkona mín úr skólanum var að tala við mig og hún var þarna þegar þetta gerðist...sá bara fullt af krökkum koma hlaupandi og grátandi og ákvað bara sjálf að hlaupa heim til sín. systir hennar lá sofandi heima en átti að vera í þessum skóla akkúrat þá!

annars er allt gott að frétta af mér og okkur. skólinn er byrjaður og svakalega mikið að gera. ég hef bara ekki haft tíma til að blogga!
síðustu helgi fórum við tommi til mont tremblant í fertugsafmæli. það er alltaf gaman að koma til mont tremblant...það er svo svakalega fallegt þar og huggulegt.

sjæse hvað maður er hissa á svona klikkuðu liði sem fer bara að skjóta mann og annan. hvað í ósköpunum gengur þeim til???

2 Comments:

At 7:35 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Ég var mikið fegin að heyra, að allt væri í lagi hjá ykkur.
Það er svo mikið af brengluðu fólki í heiminum í dag að ýmislegt getur gerst. En gangi ykkur allt í haginn krakkar mínir og bestu kveðjur frá okkur í Grindavíkinni..
Rut(tengdó)

 
At 6:00 PM, Blogger Stina said...

takk fyrir kveðjuna. :-)
já, það er mikið af brengluðu fólki í heiminum. maður verður ansi hræddur þegar svona gerist nálægt manni!

 

Sendu inn athugasemd

<< Home