Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, ágúst 07, 2006

fyrir tveimur árum síðan í dag gengum við tommi í hjónaband. við eigum því tveggja ára brúðkaupsafmæli í dag og gætum ekki verið ánægðari! við héldum upp á það í gær með því að borða góðan mat og horfa á næstum heila fyrstu seríu af 24 (vöktum langt fram á nótt)! svo fékk ég nú líka blóm frá eiginmanninum og ótrúlega gott súkkulaði sem við gæddum okkur á fyrir framan sjónvarpið. súkkulaðihúðuð bláber eru algjört lostæti!

svona litum við út fyrir tveimur árum síðan...á okkar besta degi...


og svona lítum við út núna! það sem hjónaband gerir manni!!!