Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, júlí 10, 2006

...aaaaaaand i'm back!

búið að vera ofboðslega mikið að gera hjá okkur. júlía, gunnar og óskar komu til okkar um miðjan júní og voru hér í stuði...við fórum í dýragarð, á strönd, í bæinn, upp á fjall og skemmtum okkur úti á svölum. strákarnir fóru svo á formúluna að horfa á pínulitla bíla keyra með ógnarhraða með gífurlegum hávaða á meðan við krakkarnir fengum okkur ís og fórum í fótabað til að kæla okkur á svölunum.

við tommi fórum svo í ferðalag saman...að heimsækja tomma bró í london og mormor í kungälv. það var alveg frábært að hitta alla og heimsækja æskuslóðir í svíþjóð. ég var búin að gleyma svo miklu og er búin að sakna allra svo mikið að það var alveg nauðsynlegt að heilsa aðeins upp á london og svíþjóð.

við komum svo við á íslandi á bakaleiðinni og reyndum að gera eins mikið og við gátum...náðum að hitta fáa og ábyggilega einhverjir fúlir út í okkur fyrir það...sorrí stína...next time. við náðum hins vegar að mæta í og gaula smá í brúðkaupið hjá davíð og söru. alveg var það frábær skemmtun og ótrúlega gaman að hitta alla sem þangað mættu. brúðhjónin náttúrulega geislandi af ást og litla krúttið þeirra hann alvar ofboðslega sætur.

nú tekur alvaran við, æfingar og spilerí vonandi hjá mér og vinnan hjá tomma (ásamt rokki náttúrulega). ég set kannski inn einhverjar myndir við tækifæri. :-)