Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, júní 06, 2006

það er steik úti.

ég er ennþá í ískaffinu. ofsalega svalandi í heitu veðri. :-)

í gær spilaði ég á söfnunarsamkomu hjá einhverju snobbuðu ecogrænarkítektaeitthvaðsjittfélagi. okkur var tjáð að þarna yrði "the rich left" (sumsé ríkt vinstrisinnað fólk) og við ættum að vera bakgrunnstónlistin. ég spilaði fyrst eitt sett með nils gítarleikara, bara við tvö og gekk það bara þrusuvel. ég var náttúrulega í rauðu ofurpæjuskónum mínum og fékk mörg komment út á þá...hehehe. svo eftir að búið var að halda fullt af einhverjum leiðinlegum ræðum á frönsku þá spiluðum við nokkur lög í kvartett (ég, nils á gítar, trommari og bassaleikari) sem gekk bara líka þrusuvel. það var svo heitt þarna inni að greyið bassaleikarinn var að fá aðsvif held ég, í jakkafötum með bindi. ég var nógu og sveitt í pilsi og þunnum bol!
nú er bara að vona að fólkið þarna inni hafi verið yfir sig hrifið og eigi eftir að bóka okkur á skemmtanir í sumar. :-)

hver vill koma í heimsókn til mín í ágúst? anyone?