Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, maí 09, 2006

tomminn bara farinn aftur!

já hann dreif sig vestur að gúgla smá. kemur á laugardaginn aftur svo þetta er stutt stopp. engifer sem betur fer.

hér er bongóblíða...rúmlega tuttugu gráður og sól. það á bara eftir að hlýna úr þessu, ég keypti mér líka nýjan svitalyktareyði í gær. hehehe.

ég fór á lostræng í gær með jazzkvartett sem ég kem til að syngja með í sumar. það var hörkustuð. gaman að syngja. ójá.

ég veit ekki hvað ég á af mér að gera núna. hef einhvern veginn lítið fyrir stafni annað en að æfa mig og taka saman nótur. hugmyndir vel þegnar.

peace.