til hamingju maría!
síðbúin afmæliskveðja til uppáhaldsmágkonu minnar hennar maríu. :-)
jámm við fórum að sjá da vinci code núna í kvöld. mér fannst myndin barasta ágæt...aðeins of mikið af dramatískri tónlist og eflaust fullt af hlutum sem voru í bókinni sem vantaði (ég las bara 210 bls í bókinni...nennti ekki meiru). mér fannst hún alveg þess virði að sjá hana í bíó. silas karakterinn er ferlega óhugnanlegur og sophie gellan er sæt. mig langaði eiginlega bara að skella mér í ferðalag um evrópu eftir myndina...það væri nú svei mér gaman.
ég vil annars koma því á framfæri að það er spáð 20 gráðum og léttskýjuðu á morgun...looooooksins!
ég tók upp í morgun með jazztríói...það gekk sæmó, hratt og ekki mikið pælt í útsetningum etc. kemur í ljós hvernig þetta hljómar.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home