það rignir enn!
ég horfði á síðustu þrjú lögin í eurovision í gær...náði sumsé að sjá silvíu. þetta var nú hálfmisheppnað hjá þeim greyjunum. ábyggilega ferlega stressandi að fá svona baul á sig áður en atriðið byrjaði. það sýndi sig líka alveg í andadrættinum hjá silvíu að hún var stressuð...andaði stutt og hratt og hafði engan stuðning fyrir sönginn. mjög leiðinlegt þegar svoleiðis gerist. svo var bara átfittið og atriðið ekkert sjokkerandi eftir allt hitt...það var fullt af hálfnöktum stelpum þarna í skrýtnum búningum fyrir! svo eftirá fer maður að pæla hvort þetta hafi ekki verið ansi dýrt einkadjók hjá íslendingum...hmmm og þó...kannski var þetta bara fyndið á meðan á því stóð og alveg í lagi að borga fyrir það?
annars get ég líka alltaf haldið löglega með svíþjóð. :-)
sól, sól skín á mig. ský, ský burt með þig.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home