Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, maí 12, 2006

mig dreymdi einkennilegan draum í nótt.

ég var stödd í lífsháska úti á hafi. með mér vou tommi, óskar bróðir hans, jeff söngvarinn í swh og britta. ég man ekki alveg hvernig við komumst út á mitt haf en þarna vorum við og einhver þyrla að reyna að bjarga okkur. það tókst ekki og þyrlan brotnaði í tvennt svo við reyndum að nota hana til að fljóta í en það gekk ekkert betur og við hættum snarlega við þegar við fórum að finna fyrir hákörlum narta í okkur. þá sáum við allt í einu risastórt skemmtiferðaskip sem var einhverra hluta vegna alveg tómt. við komum okkur í það og sigldum svo sem leið lá í land en gerðum okkur ekki grein fyrir hraðanum á skipinu og klesstum á...og sökktum skipinu. við náðum að hoppa í land rétt áður en það hvarf ofan í sjóinn og létum eins og ekkert hefði gerst og röltum bara í burtu. það næsta sem ég man er að við erum í einhverjum helli rétt hjá ströndinni og erum að baksa við að pakka saman dótinu okkar. við erum allt í einu komin með fullt af farangri og þurfum að koma öllu fyrir í örfáum töskum og pokum sem urðu eftir og allt er að fyllast af fólki niðri á ströndinni. það er eins og það sé einhver útihátíð í gangi og allt í einu er byrjað að draga skipið upp og óhappið breytist í glæpamál. við reynum að forða okkur en það gengur svo hægt af því að þau sem eru með mér eru svo lengi að pakka dótinu sínu (ég var náttúruega löngubúin!). svo er þarna kominn einhver óeinkennisklæddur lögreglumaður í brúnum frakka sem kallar upp í hellinn til mín þegar ég lít út að ég sé eitthvað grunsamleg til augnanna. ég næ einhvern veginn að snúa mig útúr því en þá byrjar hann að spyrja okkur öll spurninga...en það fyndna er að hann kemur ekki til okkar heldur kallar alltaf upp í hellinn og við reynum að svara. svo leysist þetta upp í einhverja vitleysu og ég vakna.