Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, maí 16, 2006

það er spáð rigningu fram á næsta ár!

ég sver það...ég hef aldrei séð svona spá, það á bókstaflega að rigna næstu tíu daga. blómin mín verða orðin að skrímslum þegar þessu lýkur.

æfingar með jazzkvartettinum ganga bara vel...ég þarf að stússast ansi mikið og skrifa nótur og vesen fyrir næstu æfingu. ágætt að hafa eitthvað að gera. svo verða upptökur í næstu viku með annarri grúppu og aldrei að vita nema ég og tommi gerum eitthvað saman.

tommi var annars að taka þátt í "launchi" á nýjustu útgáfunni af google desktop. hljómsveitin hans swh fékk meira að segja pínulítið hlutverk sem módel á skjávarpanum á kynningunni. hægt að skoða þetta á google pressday. endilega tékkið á desktop search...svínvirkar alveg og líka íslendingar sem taka þátt í þróuninni...hehehe. :-)