annar draumur
ég var í slumber partýi með björgu og boggu og signýju (stelpum sem voru með mér í ballett á sínum tíma) og fleirum og við vorum að borða nammmi og horfa á vídeó og svoleiðis og ætluðum svo allar að fara á kr-leik sem átti að vera á þingvöllum daginn eftir. ég heyrði svo ekkert meira í þeim en ákvað að koma mér sjálf upp á þingvelli daginn eftir. þegar þangað var komið var fullt af tjöldum og fólki og varðeldum og ég veit ekki hvað og hvað og svo rak ég augun í hann geira sem vann hjá kr á sínum tíma...sumir kölluðu hann geira gám, veit ekki alveg af hverju. svo fór ég að leita inni á hótelinu þarna og í tjöldunum að stelpunum en fann þær hvergi. ég opnaði hurðir inn í alls kyns herbergi með alls kyns fólki og sá heilu sögurnar gerast, einhverjar stelpur að syngja saman karaoke, stelpur að tala um stráka, stráka að tala um stelpur, fullorðna menn að tala um leikinn o.s.frv. en vinkonurnar voru hvergi. ég ákvað því að reyna að taka bara næstu rútu heim...og var líka alltaf haldandi á einhverjum poka með cheerios í! það var enginn sem talaði við mig þarna og ég var afskaplega lónlí og fór bara upp í rútu og heim...svekkt.
hvað ætli þetta þýði?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home