Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, apríl 09, 2006

vor.

ég fór út á markaðinn í dag og keypti páskaliljur og greinar. ég var búin að kaupa máluð gerviegg og ætla að skreyta smá núna...í fyrsta skipti í hjúskapartíð okkar tomma ætla ég að hafa páskalegt um páskana. líst vel á það.

tommi var að spila á tónleikum í gær á einhverjum litlum stað í bænum og það var hressandi. þeir eru bara alltof góðir fyrir svona litla staði...þeir eiga heima á stóru sviði. svo eru þeir líka allir sætir...sérstaklega tommi. híhí. þekkir ekki einhver fólkið sem stjórnar airwaves og getur fengið þá til að spila þar í ár? það væri snilld.

við erum farin að plana sumarið hjá okkur. krakkarnir koma til okkar í júní og óskar bróðir hans tomma...þá verður sko STUUUUUUUÐ! svo förum við tommi að heimsækja mormor í svíþjóð. ég hef ekki heimsótt hana í svoooooooo langan tíma og tommi hefur aldrei komið til kungälv. ég eyddi jú góðum hluta minna æskusumra þar í ævintýrum með systkinum mínum og frændfólki. fór til dæmis í tónleikaferðalag með hljómsveit móðurbræðra minna þegar ég var sex ára. síðan þá hefur mér alltaf þótt góð lykt af hljómsveitagræjum...sambland af svona hljóðtækja-, bjór- sígarettu og rafmagnslykt. i love it!