góður dagur í dag.
mér gekk svakalega vel í skólanum og hann charles ellison hrósaði mér svo hrikalega að ég átti bara ekki til orð. það eru alltaf svona hálfblendnar tilfinningar við að fá mikið hrós. maður er ánægður en samt hræddur um að standa svo ekki undir væntingum. óvell...ég bara æfi mig meira og vona að ég valdi ekki vonbrigðum. :-)
hvað er annars málið með silvíu nótt og allar stelpurnar/konurnar sem vilja vera eins og hún? ég rekst á myndir alltof oft af fólki í búning eins og silvía nótt...er þetta ekkert að verða gamalt? mér myndi líða eitthvað svo kjánalega í svona búning...æi ég veit ekki, kannski er ég bara ekki að fatta djókið nógu vel.
hefur einhver lent í eftirfarandi? maður týnir einhverju og leitar í heilan dag að því...útum allt og verður ótrúlega pirraður á því og fúll og dagur fer bókstaflega útum þúfur...svo finnur maður allt í einu hlutinn og verður svo ánægður að maður gleymir algjörlega að maður var gjörsamlega brjálaður yfir því að vera að eyða deginum í að leita að dótinu. merkilegt hvað maður er stundum fljótur að gleyma.
úff ég get ekki beðið eftir vori...sumri...hlýju...blómum og sólbrúnku. við tommi ætlum að verða heltönuð úti á svölum í sumar og ætlum svo að fá okkur neonhvítar tennur og laxableik sundföt úr krumpuefni. við verðum flott!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home