Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, febrúar 04, 2006

til hamingju ísland!

ég var svo heppin að hitta akkúrat á júróvisjón í sjónvarpinu núna og sá keppnina í kvöld. ferlega var hún silvía nótt góð...hún er rosalegur performer svo maður sletti nú á ensku. ég man ekki hvað leikkonan heitir en hún er þrususöngkona og er ótrúlega fyndin í þessu gervi. finnst mér allavega. og þegar hún svaraði spurningunni hvort það hefði verið mikil pressa á henni að fara í keppnina..."já síðan ég fæddist skiluru"...hahaha. mér fannst hún allavega syngja mun betur en margir þarna og vera vanari á sviðinu líka...birgitta var náttúrulega rosalega sæt og væmin og dísella líka. hvað fannst öðrum um þetta?

ég er ekki ennþá búin að jafna mig á ölduhryggnum eins og einhver sagði...brokeback mountain þ.e. ég er meira að segja búin að vera að hlusta á tónlistina úr myndinni til að viðhalda bömmernum. hehe.